Sjálfstæðisflokkurinn nýtur mests fylgis allra flokka í Reykjavíkurborg samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups fyrir Viðskiptablaðið og Samfylkingin fylgir fast á eftir. Báðir mælast með um þrefalt meira fylgi en sá flokkur sem mælist þriðji stærstur, sem er Viðreisn.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 32,7% atkvæða ef kosið væri nú og Samfylkingin 29,4%. Það myndi skila báðum flokkum átta borgarfulltrúum.
Viðreisn mælist þriðji stærstur með 10,0% og tvo borgarfulltrúa. Miðflokkurinn mælist litlu minni, með 9,3 prósent og tvo borgarfulltrúa eins og Viðreisn. Hann náði ekki kjöri í síðustu borgarstjórnarkosningum.
Fylgi flokkanna í Reykjavíkurborg
Skoðanakönnun Gallups fyrir Viðskiptablaðið í janúar 2026

Enginn annar flokkur fengi meira en einn borgarfulltrúa. Þeir sem kæmust inn í borgarstjórn með einn fulltrúa eru Píratar sem mælast með 5,0% fylgi, Sósíalistaflokkurinn með 4,1% og Vinstri græn með 3,7%.
Hástökkvarar síðustu kosninga myndu falla út úr borgarstjórn þar sem Framsóknarflokkurinn mælist aðeins með 2,5%. Flokkur fólksins fengi 2,1% atkvæða. Boðað hefur verið sameiginlegt framboð Vors til vinstri og Vinstri grænna. Bæði eru nefnd í könnuninni og sögðust aðeins 1,2% myndu kjósa Vor til vinstri.

