Dómur var kveðinn upp í máli fimmtugrar sænskrar konu sem var starfsmaður á sambýli í Södertälje, suðvestur af Stokkhólmi. Konan var handtekin í haust fyrir að hafa ítrekað nauðgað sautján ára gömlum pilti sem er vistaður á sambýlinu. Nauðganirnar áttu sér stað í fyrrasumar og -haust.
Fjallað er um málið á fréttavefnum Mbl.is og þar segir að hér sé á ferð eitt af fyrstu dómsmálunum sem reyni á ný sænsk lög sem tóku gildi í sumar og ætlað er að taka á kynferðisbrotum gegn ungmennum. Í eldri lögum var glufa hvað snertir tilvik þar sem brotaþolar eru ungmenni á aldursskeiðinu milli fimmtán og átján ára en þar þótti vanta ákvæði um brot sem framin eru við aðstæður þar sem brotaþoli hefur „skerta getu til að verja kynferðislegt frelsi sitt“.
Konan var dæmdi í þriggja og hálfs árs fangelsi auk þess sem dómarinn dæmdi hana til að greiða brotaþola í skaðabætur, jafnvirði 4,4 milljóna íslenskra króna.
,,Susanna Pettersson, lögfræðingur og sérfræðingur í barnarétti, segir að mikil ánægja ríki með nýju löggjöfina sem mikil þörf hafi verið á en Gabriella Widstrand héraðssaksóknari sagði í samtali við sænska ríkisútvarpið SVT í janúar að athyglisvert yrði að sjá hvernig lögum þessum yrði beitt við rekstur málsins.
Ákærða, sem hefur umfangsmikla reynslu af starfi með börnum og ungmennum, neitaði sök í málinu þrátt fyrir að játa háttsemi sína sem lögregla stóð hana að verki við á sambýlinu í haust og beinlínis stöðvaði framningu brotsins.“

