Nýr 30.000 fermetra Tækniskóli við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði fyrir þrjú þúsund nemendur verður byggður í einum áfanga í stað tveggja. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og Hildur Ingvarsdóttir skólameistari Tækniskólans undirrituðu samkomulag þess efnis á Menntadegi atvinnulífsins í gær. Markmiðið er að eyða óvissu um framtíð Tækniskólans og flýta fyrir byggingu burðarstólpa iðn- og verknáms á Íslandi á einum stað og í fullri stærð.
Til stóð að byggja skólann í tveimur áföngum, 24.000 m² í fyrri áfanga og 6.000 m² í þeim síðari. Með samkomulaginu nú er búið að eyða óvissunni um síðari áfanga verkefnisins og flýta fyrir uppbyggingu skólans í fullri stærð. Bygging skólans í einum áfanga einfaldar fjármögnun, hönnun og framkvæmd, og flýtir fyrir þeim samlegðaráhrifum í rekstri þegar öll starfsemi skólans flyst í eitt og stærra húsnæði. Þar verður öll starfsemi skólans sameinuð á einum stað, í framúrskarandi og nútímalegu húsnæði, sem mun efla iðn-, starfs- og tækninám á Íslandi.

Egill Jónsson, formaður stjórnar Tækniskólans, Hildur Ingvarsdóttir skólameistari Tækniskólans, Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Jón B. Stefánsson, fv. skólameistari Tækniskólans og stjórnarmaður í Skólastræti, og Guðmundur Örn Óskarsson framkvæmdastjóri Skólastrætis. Skólastræti Tækniskólans ehf. stendur fyrir nýbyggingu og rekstri fasteigna Tækniskólans.
Starfsemi Tækniskólans er í dag dreifð um átta byggingar á fimm stöðum á höfuðborgarsvæðinu, í húsnæði sem að verulegu leyti er komið til ára sinna og uppfyllir ekki lengur kröfur um nútímalegt skólaumhverfi. Samhliða hefur eftirspurn eftir iðn- og verknámi aukist verulega, bæði meðal nemenda og atvinnulífs. Nýr Tækniskóli fellur að stefnu ríkisstjórnar um aukið vægi iðn- og verknáms, svarar ákalli atvinnulífsins og þörfum samfélagsins.
„Stækkun Tækniskólans í Hafnarfirði er ekki munaður, hún er nauðsyn,“ segir Inga. „Við viljum reisa skólann hratt og vel, í fullri stærð og eyða allri óvissu þar að lútandi. Við viljum ekki bútasaum heldur láta verkin tala með markvissri uppbyggingu, hér á höfuðborgarsvæðinu og ekki síður með áformum ráðuneytisins um byggingu verknámsaðstöðu um allt land.“
Samkomulagið í dag er viðauki við samning sem stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu árið 2024. Langur undirbúningur og þarfagreining Tækniskólans lágu til grundvallar þess samnings.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ásamt Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, og Steini Jóhannssyni, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, í pallborðsumræðum um menntamál
Framkvæmdin felur ekki í sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð. Verkefnið verður fjármagnað með lánsfé og eiginfjárframlagi, þar sem húsaleiguframlag mennta- og barnamálaráðuneytisins samkvæmt þjónustusamningi mun standa undir fjármögnuninni.

