Helstu atriði úr dagbók lögreglu frá 05-17. Átta gista fangageymslur lögreglu er þetta er ritað
Lögreglustöð 1.
- Innbrot og þjófnaður í gistiheimili í hverfi 101.
- Maður handtekinn í hverfi 108 grunaður um söludreifingu fíkniefna, peningaþvætti og útlendingalagabrot.
- Tilkynnt um slagsmál í hverfi 101. Tvö handtekin grunuð um líkamsárás og brot á lögreglusamþykkt.
- Innbrot í bifreið í hverfi 105.
Lögreglustöð 2.
- Maður handtekinn grunaður um fíkniefnaakstur í hverfi 221.
- Tilkynnt um ungmenni að sprengja flugelda í hverfi 221.
- Kona handtekin grunuð um ölvunarakstur í hverfi 221.
- Tilkynnt um húsbrot í hverfi 210. Einn handtekinn.
Lögreglustöð 3.
- Maður handtekinn í hverfi 200 grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, söludreifingu fíkniefna og útlendingalagabrot.
- Maður handtekinn í hverfi 111 vegna gruns um líkamsárás, eignaspjöll, hótanir og vopnalagabrot.
- Maður handtekinn grunaður um ölvunarakstur í hverfi 111. Einnig undir áhrifum fíkniefna og ekki með ökuréttindi.
- Maður handtekinn grunaður um ölvunarakstur í hverfi 200.
Lögreglustöð 4.
- Tveir menn handteknir í hverfi 112 grunaðir um stórfellda líkamsárás og vörslur fíkniefna.
Umræða

