Í ljósi umræðunnar um frumvarp um vísitölutengingu lífeyris lýsir Landsamband eldri borgara yfir eindregnum stuðningi við það frumvarp
Þar sem nokkurs misskilnings hefur gætt í umræðunni vill LEB taka það fram að eingöngu er verið að tala um grunnlífeyri en ekki heildarlaun eins og sumir hafa reynt að halda fram.
Staðreyndirnar eru einfaldlega þær að gríðarleg kjaragliðnun hefur átt sér stað milli grunnfjárhæðar ellilífeyris og lægsta taxta Starfsgreinasambandsins.
Þann 1. Janúar 2017 var munurinn á milli lægsta taxta SGS og grunnlífeyris kr. 51.266.-
1.janúar 2025 var munurinn orðinn 102.223.-
1.janúar 2026 jókst hann enn meira og er orðinn 110.501.-
Það er alveg ljóst að þessu verður ekki unað lengur og ríkisstjórnin er einmitt að bregðast við þessu með þeirri aðgerð að tengja grunnlífeyri við launavísitölu.
Í umsögn okkar við frumvarpið lýstum við yfir stuðningi við það en bentum einmitt á þessa kjaragliðnun sem hefur átt sér stað nú þegar og að tenging við vísitöluna mun ekki vinna á þeirri gliðnun, eingöngu tryggja að lífeyrir haldi verðgildi sínu.
LEB telur þessa gliðnun á milli launa og grunnlífeyris vera með öllu óþolandi sem gerir ekkert annað en að mismuna fólki eftir aldursskeiðum.

