Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tók þátt í fjarfundi með norrænum ráðherrum útlendingamála í dag. Fundurinn var haldinn að frumkvæði Mari Rantanen, innanríkisráðherra Finnlands. Dómsmálaráðherra lagði til að þessir ráðherrar funduðu oftar og reglubundið með þessum hætti og var sammælst um það.
Á fundinum ræddu ráðherrarnir mikilvægi náins samstarf ríkjanna þegar kemur að útlendingamálum með áherslu á brottvísanir einstaklinga í ólögmætri dvöl, þar á meðal möguleikann á því að brottvísa einstaklingum til svokallaðra öruggra þriðju ríkja. Endursendingastöðvar utan Evrópu (e. return hubs) geta aukið skilvirkni í málaflokknum og eins stuðlað að því að einstaklingar kjósi fremur að yfirgefa svæðið sjálfviljugir. Ráðherrarnir ræddu möguleikann á því að vísa einstaklingum, í ólögmætri dvöl innan Schengen-svæðisins, í endursendingastöðvar á meðan beðið er eftir því að tækt sé að flytja viðkomandi til upprunaríkis. Þá voru móttökustöðvar (e. reception centers) í þriðja ríki líka nefndar.
„Brottvísanir til þriðju ríkja eru meðal þeirra kosta sem eru til skoðunar innan Evrópusambandsins, og mikilvægt er að Norðurlöndin meti hvort og hvernig unnt sé að nálgast slíkar leiðir í sameiningu. Jafnframt þurfum við að tryggja að allar aðgerðir samræmist alþjóðlegum skuldbindingum okkar og grundvallarsjónarmiðum um öryggi og mannréttindi,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Samningaviðræður um nýja reglugerð um brottvísanir standa enn yfir innan ESB. Í mars 2025 lagði framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fram tillögu að nýrri reglugerð sem miðar að því að auka skilvirkni við brottvísun þeirra sem dvelja ólöglega innan Schengen-svæðisins og koma í veg fyrir óheimilar ferðir á milli ríkja innan svæðisins.
Ráðherrarnir ræddu einnig nýlega samþykkta tillögu framkvæmdastjórnar ESB um örugg þriðju ríki, sem lögð var fram vorið 2025 og samþykkt af Evrópuþinginu 11. febrúar 2026. Með breytingunni verður beitingu hugtaksins um öruggt þriðja ríki víkkuð. Þá ræddu ráðherrarnir einnig brottvísanir til Sýrlands og Afganistan og mikilvægi norræns samstarfs.

