GRÍÐARHÁR SÖLUKOSTNAÐUR SKILAR HRAKVIRÐI

Ég hef áður fjallað um þann magfalda mun sem er á verði til skipa fyrir loðnuna í Færeyjum og á Íslandi. Ef greitt væri sambærilegt verð hér og í Færeyjum þá hefði það strax jákvæð áhrif á hafnarsjóði, laun sjómanna og þar með á skatttekjur ríkis og sveitarfélaga, auk hærri veiðigjalda á næsta ári.
Hér að neðan er tíundað verð og kostnaður við sölu á íslenskri loðnu en á samskeyttri mynd þar fyrir neðan er yfirlit frá gagnabanka um heimsmarkaðsverð á frosinni loðnu.
Allra hæstu verð sem eru í boði fyrir íslenska framleiðendur er um 400 kr/kg á meðan heimsmarkaðsverðið er rúmar 1.100 kr. Þessi verðmunur er sláandi í ljósi þess hve gríðarhár sölukostnaður er fyrir íslensku loðnuna.
Það vantar augljóslega verulega á gagnsæi hvað varðar sölu á sjávarafurðum en um er að ræða m.a. fyrirtæki á markaði og afurðir úr sameiginlegri auðlind þjóðarinnar.

Umræða

