Þvílík sturlun. Svo þegar þetta fólk lætur af embætti þykist það aldrei hafa tekið sér frí, voðalegur bömmer, og fær því með sér sem kveðjugjöf orlofsgreiðslur upp á margar milljónir eins og ekkert sé.

Svo er fólk undrandi á því að ekkert gangi að hemja launaskrið og ná niður verðbólgu – pólitísk yfirstétt fer á undan með ömurlegu fordæmi og skammtar sér milljónir eins og ekkert sé.
Á meðan hún ræður ekki einu sinni við að tryggja sómasamlega grunnþjónustu.
Hvaða hvata hefur þessi yfirstétt til þess að sýna ráðdeild – bókstaflega enga, fær að komast upp með hvað sem er – enda á ráðdeildin aðeins að vera hjá láglaunafólkinu sem starfar í fjársveltum umönnunarkerfunum sem enginn þykist bera ábyrgð á.

Umræða

