Hugleiðingar veðurfræðings
Það sem af er þessu ári hefur veður á landinu verið óvenjulega tilbreytingarlítið og hafa austan- og norðaustanáttir verið ríkjandi.
Nú hafa orðið umskipti í veðrinu og á næstunni tekur við veðurlag hjá okkur sem einkennist af breytileika. Bæði verður veðrið breytilegt milli landshluta og einnig breytilegt með tíma innan sama landsvæðis.
Að þessu sögðu, þá skal nú gerð tilraun til að setja fram veðurspá fyrir landið allt í dag. Eftir sunnanáttina í gær, þá snýst í norðan- og norðvestanátt í dag, víða á bilinu 8-15 m/s, en 13-20 með snörpum hviðum á Austfjörðum undir kvöld. Búast má við éljum norðan- og vestanlands. Úrkomusvæði með samfelldri rigningu eða slyddu fer yfir austanvert landið, en styttir upp þar í kvöld. Það kólnar nokkuð skarpt í dag, það frystir fyrst á Vestfjörðum og í kvöld verður orðið frost á öllu landinu.
Á morgun, miðvikudag, er útlit fyrir suðvestan- og sunnanátt. Það má búast við éljum, en þegar kemur fram á daginn er gert ráð fyrir að úrkomusvæði með snjókomu fari yfir vesturhelming landsins frá suðri til norðurs. Austanvert landið ætti að sleppa við úrkomu á morgun.
Á fimmtudag hefur síðan hlýnað um stóran hluta landsins með rigningu eða slyddu. Eftir hádegi á fimmtudag er hins vegar útlit fyrir að skilabakki með snjókomu, norðvestanátt og ört kólnandi veðri gangi inn á vestanvert landið. Við látum nú staðar numið, en það er sem sagt fjölbreytilegt veður í vændum á landinu, eins og áður sagði. Spá gerð: 24.02.2026 06:41. Gildir til: 25.02.2026 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Gengur í norðan og norðvestan 8-15 m/s, fyrst vestantil. Norðvestan 15-23 á austanverðu landinu undir kvöld. Él norðan- og vestanlands. Rigning eða slydda um landið austanvert, en styttir upp þar í kvöld. Kólnandi veður, frost um allt land í kvöld.
Suðvestan og sunnan 8-15 á morgun og snjókoma eða él, en yfirleitt þurrt á austanverðu landinu. Frost 0 til 7 stig, hlýnar annað kvöld.
Spá gerð: 24.02.2026 10:56. Gildir til: 26.02.2026 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Suðaustan 5-13 m/s og rigning eða slydda með köflum sunnanlands, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi. Hiti 0 til 6 stig. Gengur í norðvestan 10-18 með snjókomu og frosti á vestanverðu landinu seinnipartinn.
Á föstudag:
Vestan 8-15 m/s og él eða snjókoma, en styttir upp og birtir til á austanverðu landinu eftir hádegi. Frost 3 til 12 stig.
Á laugardag:
Breytileg átt. Stöku él suðvestantil, en annars yfirleitt bjart. Frost 0 til 10 stig, mildast við syðst. Snjókoma eða slydda og hlýnar heldur á suðaustanverðu landinu eftir hádegi.
Á sunnudag:
Norðaustlæg eða breytileg átt og víða él. Frost 0 til 7 stig, mildast við suðurströndina.
Á mánudag:
Norðlæg átt með éljum eða snjókomu en bjartviðri sunnan heiða. Hiti breytist lítið.
Spá gerð: 24.02.2026 08:40. Gildir til: 03.03.2026 12:00.

