• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 25. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Kristrún launalaus á Alþingi – Launahækkun ráðamanna verði undir 66 þúsund krónum á mánuði

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar - Samfylkingin er með meira fylgi en allir stjórnarflokkarnir til samans

Yfirþyrmandi að minnast Úkraínumanna sem hafa fallið í varnarbaráttunni við Rússa

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. febrúar 2026
in Erlent, Fréttir
A A
0

Ég er nývöknuð eftir langa lestarferð frá Kyiv til Póllands 🇮🇸🇺🇦

Í gær voru fjögur ár frá því að allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu hófst. Það var átakanlegt og yfirþyrmandi að standa á Maidan-torgi í Kyiv í gær og minnast Úkraínumanna sem hafa fallið í varnarbaráttunni. Og sjá með eigin augum eyðilegginguna sem Rússar hafa valdið.
Ísland mun áfram standa þétt með Úkraínu í samfloti með Norðurlöndum, Eystrasaltsríkjum og öðrum ríkjum Evrópu. Þetta gerum við á grundvelli fyrri skuldbindinga okkar um öryggissamstarf og langtímastuðning við Úkraínu sem Alþingi samþykkti fyrir tæpum tveimur árum einróma. Við getum verið stolt af því. Ég er stolt af því.

Í fyrra fjármögnuðum við t.d. og leiddum verkefni um sprengjuleit- og eyðingu, ásamt Litháen. Þar eigum við sérfræðinga og leggjum verulega af mörkum með okkar þekkingu. Við höfum líka stutt þjálfunarverkefni á vegum NATO. Öll verkefni eru í samræmi við óskir Úkraínumanna sjálfra og þessi framlög — fjárhagsleg og í formi þekkingar — hafa skilað árangri. Við höldum nú áfram á sömu braut og beinum jafnframt fjármagni í nauðsynlega uppbyggingu orkuinnviða, sem víða eru rjúkandi rústir eftir hræðilegar loftárásir Rússa.

Svona sýnum við stuðning í verki, að sjálfsögðu á forsendum úkraínsku þjóðarinnar. Við gerum það til að tryggja öryggi Úkraínu og Evrópu allrar og til að senda skýr skilaboð um að landamæri verða ekki rofin með valdi. Ég veit að þessi átök virðast oft svo fjarri okkur Íslendingum og erfitt er að tengja þau við okkar daglega líf. En Ísland á allt undir að stórveldi komist ekki upp með hegðun sem þessa. Við höfum lengi verið í vari með góða bandamenn og byggt okkar góða samfélag í slíku skjóli. Við viljum viðhalda því.

Nú er ég í bílalest á leið til Varsjár þar sem ég mun funda með Donald Tusk forsætisráðherra Póllands, áður en ég kem svo til Íslands í kvöld. Ég hlakka til að komast heim og sinna brýnum verkefnum innanlands. En það er gott að fá stóra samhengið stundum beint í æð eins og hér síðustu sólarhringa: fullveldið er ekki sjálfgefið. Það þekkjum við Íslendingar og við vitum vel hversu dýrmætt það er að vera sjálfstæð þjóð með góða bandamenn.

📸 Eyþór Árnason/Morgunblaðið
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir handteknir vegna andláts á Selfossi

    Lögreglumál: Þrjár stúlkur frömdu líkamsárás

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Gæsluvarðhald vegna andláts karlmanns í Kópavogi

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Þvílíkt sturluð laun hjá elítunni!

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Sturluð staðreynd

    52 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?