Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra um að veita Landspítala 25 milljóna króna styrk af ráðstöfunarfé sínu vegna stuðnings við einstaklinga sem voru vistaðir sem fósturbörn í Bakkakoti.
Landspítali hefur að beiðni ríkisstjórnarinnar tekið að sér að meta þjónustuþörf hóps einstaklinga sem vistaðir voru í Bakkakoti sem fósturbörn. Samhliða verður umræddum einstaklingum veittur sálrænn stuðningur þar sem minningar um þungbæra reynslu í bernsku hafa verið kallaðar fram upp á síðkastið.
Fjárstyrkurinn vegna sálræns stuðnings og mats á þjónustuþörf er veittur á grundvelli ákvarðana ríkisstjórnarinnar frá 6. febrúar sl. vegna mála sem tengjast Bakkakoti. Áfram er unnið að öðrum þáttum, þ.e. frumvarpi um rannsóknarnefnd vegna Bakkakots, frumvarpi um almennar sanngirnisbætur og úttekt á núverandi eftirliti með fósturheimilum.

