• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 28. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ísland viðurkennir almenna lögsögu Alþjóðadómstólsins í Haag

Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, afhendir fulltrúa skrifstofu aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna yfirlýsingu Íslands.

Ísland viðurkennir almenna lögsögu Alþjóðadómstólsins í Haag

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. febrúar 2026
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0

Utanríkisráðherra hefur gefið út yfirlýsingu sem felur í sér viðurkenningu íslenskra stjórnvalda á almennri lögsögu Alþjóðadómstólsins í Haag. Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, afhenti yfirlýsinguna til vörslu aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. 

Alþjóðadómstóllinn starfar á grundvelli stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og er gjarnan vísað til hans sem æðsta dómstóls alþjóðakerfisins. Hlutverk hans er að leysa úr ágreiningi á sviði þjóðaréttar sem ríki geta vísað til hans sem og að veita stofnunum Sameinuðu þjóðanna ráðgefandi álit um lagaleg álitamál þegar eftir þeim er leitað.

Lögsaga dómstólsins byggir oftast á ákvæðum í milliríkjasamningum um vísun deilna til úrlausnar hans, en í stofnsamþykkt hans er jafnframt kveðið á um heimild ríkja til að gefa út yfirlýsingu til viðurkenningar á almennri lögsögu dómstólsins þegar þjóðréttardeilur koma upp milli ríkja. Alls hafa 74 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna gefið út slíka yfirlýsingu, þar á meðal öll hin Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin auk annarra helstu samstarfsríkja Íslands. Slíkum yfirlýsingum fylgir gjarnan krafa um gagnkvæmni og á það einnig við um yfirlýsingu Íslands.

Viðurkenning íslenskra stjórnvalda er liður í aukinni áherslu á þá réttarvernd sem alþjóðalög veita. Mikilvægt er að íslensk stjórnvöld hafi aðgang að leiðum til bindandi úrlausnar deilumála, sem úrræði til að standa vörð um réttindi sín, óháð stærð og styrk, þegar til ágreinings við önnur ríki kemur. Viðurkenning lögsögunnar endurspeglar jafnframt þá grundvallarsýn íslenskrar utanríkisstefnu að réttindi Íslands gagnvart öðrum ríkjum verði best tryggð í umgjörð burðugs alþjóðakerfis ríkja sem starfar í samræmi við reglur réttarríkisins. Loks má nefna að sú leið sem nú er farin er talin líkleg til að vera hagkvæmari fyrir ríkissjóð en það fyrirkomulag sem Ísland viðhafði áður.

„Lengi hefur verið sagt um alþjóðalög að þau séu sverð okkar og skjöldur í samskiptum við umheiminn og er aukin óvissa í alþjóðamálum brýn áminning um það. Orðið var tímabært að viðurkenna lögsögu Alþjóðadómstólsins og styrkja þar með brynju alþjóðalaganna sem alþjóðleg samvinna og viðskipti okkar Íslendinga byggir á,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Yfirlýsingin tekur þegar gildi og má nálgast hana á vefsvæði Sameinuðu þjóðanna.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Tugi milljarða til Íran frá Íslandi

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Einfaldara og fljótlegra að uppfæra ökuskírteini

    70 deilingar
    Share 28 Tweet 18
  • Fiskifræðingur segir kvótakerfið algerlega brugðist og lagt landsbyggðina í rúst

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Skjald­borg um sjöfaldan veikindarétt

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Styrkur til fyrrverandi fósturbarna í Bakkakoti

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?