• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 11. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB

Af fréttamannafundi forystukvenna ríkisstjórnarinnar.

Lánshæfismat íslenska ríkisins á uppleið

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. mars 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Horfur fyrir lánshæfi ríkissjóðs breytast úr stöðugum í jákvæðar hjá matsfyrirtækinu S&P Global Ratings. Er það byggt á sterkri stöðu ríkisfjármála og væntingum um áframhaldandi bata á næstu tveimur árum. Fjármála- og efnahagsráðherra segir þetta hvatningu til að halda áfram af festu.

Lánshæfi endurspeglar mat á getu lántakenda til að standa við skuldbindingar sínar að fullu og á réttum tíma. Lánshæfismat skiptir því verulegu máli á fjármálamörkuðum og hefur áhrif á þau lánskjör sem lántakendum, eins og ríkissjóði, bjóðast hverju sinni.
Tilkynnt var um breytinguna við lokun markaða vestanhafs í gær en samhliða jákvæðum horfum voru lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs til skemmri og lengri tíma staðfestar í ‘A+/A-1’.

Horfur batnað hjá matsfyrirtækjunum þremur

Lánshæfismat íslenska ríkisins hefur batnað á undanförnum misserum hjá matsfyrirtækjunum þremur; Moody´s, S&P Global Ratings og Fitch ratings. Síðasta breyting varð í febrúar þegar Fitch ratings hækkaði lánshæfiseinkunn ríkissjóðs um einn flokk í A+. Horfur um einkunnina höfðu þá verið jákvæðar hjá Fitch í um hálft ár.

 

Jákvæðar horfur geta að óbreyttu leitt til hækkunar á lánshæfiseinkunn, gangi þær forsendur eftir sem fyrirtækin setja fram til grundvallar mati sínu. Sterkari staða opinberra fjármála, horfur á lækkandi skuldahlutfalli og samstaða um varfærni í ríkisfjármálum eru lykilþættir til bætts lánshæfismats.

„Ábyrg stjórn ríkisfjármála er lykilatriði. Stór skref hafa verið tekin með stöðugleikareglu, uppgjöri ÍL-sjóðs og sölunni á Íslandsbanka. Næsta verkefni er hallalaus fjárlög,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Horfur eru stöðugar hjá Moody´s en fyrirtækið birtir næst uppfært mat sitt á lánshæfi ríkissjóðs þann 27. mars n.k.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Ríkisstjórnin boðar hækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána neytenda

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Ó­lög­mæt eigna­upp­taka í gegnum verð­tryggingu eru 60 milljarðar síðustu þrjú ár

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Laus hundur veittist að barni

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • ,,Stanslaust klisju kjaftæði“

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • ,,Frekja, græðgi og yfirgangur – eigum við ekki að rísa upp gegn þessu?“

    129 deilingar
    Share 126 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?