Dómsmálaráðherra hefur skipað Sindra M. Stephensen í embætti dómara sem mun hafa starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur en sinna störfum við alla héraðsdómstóla eftir ákvörðun dómstólasýslunnar. Dómsmálaráðherra hefur jafnframt skipað Særúnu Maríu Gunnarsdóttur í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur. Báðar skipanirnar eru frá og með 9. mars 2026.
Þá hefur verið fallið frá setningu í embætti héraðsdómara sem auglýst var til umsóknar 5. desember 2025.
Sindri M. Stephensen lauk BA-prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2012 og meistaraprófi í lögfræði frá sama skóla 2014. Þá lauk hann Mag.jur gráðu frá Oxford háskóla 2017 og útskrifaðist 2019 með diplómu í opinberri stjórnsýslu frá stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Árið 2015 öðlaðist hann réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Að loknu lagaprófi starfaði Sindri á lögmannstofu og sem aðstoðarmaður dómara við EFTA-dómstólinn. Frá 2019 hefur hann starfað við lagadeild Háskólans í Reykjavík, þar af sem lektor frá því ári og sem dósent frá 2021. Frá 4. apríl 2024 hann verið settur dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur. Þá hefur Sindri ritað bæði fræðirit og fjölmargar fræðigreinar á sviði lögfræði. Af öðrum störfum má nefna að Sindri hefur gegnt starfi formanns nefndar sem metur lausn embættismanna um stundarsakir, setið í kærunefnd útlendingamála auk þess að vera forstöðumaður Réttarfarstofnunar Háskólans í Reykjavík frá 2020.
Særún María Gunnarsdóttir lauk kandídatsprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2004. Að loknu laganámi hóf hún störf sem lögfræðingur hjá Persónuvernd og starfaði til ársins 2008 þegar hún hóf störf sem lögfræðingur hjá embætti umboðsmanns Alþingis. Særún María hefur starfað hjá umboðsmanni Alþingis frá þeim tíma, þar af sem skrifstofustjóri frá 2015 og sem aðalskrifstofustjóri frá 2022 og hefur í því starfi komið að ritun fjölda lögfræðilegra úrlausna. Þá hefur Særún sinnt bæði fræðastörfum og kennslu í lögfræði við þrjá íslenska háskóla. Af öðrum störfum má nefna að hún hefur komið að gerð lagafrumvarpa og verið til ráðgjafar um löggjöf á málefnasviði umboðsmanns Alþingis og persónuverndar.

