Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Einar Geir Þorsteinsson, oddvita Miðflokksins í Hafnarfirði í Síðdegisútvarpinu á útvarppi Sögu um áhrif hælisleitenda á innviði og fjármál bæjarins, í aðdraganda komandi bæjarstjórnarkosninga. Í umræðunni sagði hann að Hafnarfjörður hefði borið þungar byrðar vegna málaflokksins undanfarin ár og að kostnaður félagsþjónustu vegna hans hafi numið um 2 milljörðum króna frá árinu 2020 til 2025. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Um 1.200 hælisleitendur í Hafnarfirði
Í viðtalinu kom fram að samkvæmt upplýsingum sem Einar Geir sagðist hafa unnið með, hefðu rúmlega 1.200 einstaklingar verið skráðir eða paraðir við Hafnarfjörð á síðustu 5 árum í tengslum við málaflokkinn. Hann sagði að þessi fjöldi væri ekki í samræmi við það sem hann teldi eiga sér stað í samanburðarsveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Hann nefndi sérstaklega Garðabæ og Kópavog sem dæmi um sveitarfélög sem hann taldi hafa borið minni byrðar. Í hans máli kom fram að þetta vekti spurningar um skiptingu verkefna og ábyrgðar milli sveitarfélaga.
16 starfsmenn í fullu starfi vegna þjónustu við hælisleitendur
Einar Geir sagði að kostnaður sveitarfélagsins vegna félagsþjónustu tengdrar málaflokknum væri um 2 milljarðar króna á tímabilinu 2020 til 2025. Hann sagði að starfsmannafjöldi sem sinnti verkefninu í Hafnarfirði væri um 16 í fullu starfi. Hann benti á að þó ríkið endurgreiddi hluta kostnaðarins bæri sveitarfélagið áfram ábyrgð á þjónustunni og þeim útgjöldum sem fylgdu til lengri tíma. Í umræðunni var þetta tengt við tekjustofna bæjarins og svigrúm til að sinna öðrum verkefnum.
Segir upplýsingar ekki liggja skýrt fyrir
Í viðtalinu kom fram að Einar Geir taldi að upplýsingar um málaflokkinn væru ekki aðgengilegar með skýrum hætti, fyrir íbúa og umræðan um hann hefði ekki verið sett í forgang í bæjarstjórn. Hann sagði að íbúar ættu rétt á að sjá betur, hvernig fjármunum væri varið, þegar um væri að ræða útsvar og aðra sameiginlega tekjustofna sveitarfélagsins. Hann sagði Miðflokkinn ætla að gera málaflokkinn að umræðuefni í kosningabaráttunni með áherslu á kostnað, álag á innviði og gagnsæi í stjórnsýslu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

