Viðvörun frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar
Hvöss austanátt og blint í snjókomu og skafrenningi á Hellisheiði og í Þrengslum frá miðnætti og til hádegis. Snarpar vindhviður, um 35 m/s, við Hafnarfjall og á Kjalrnesi frá kl 03 til 07 í fyrramálið, og á Snæfellsnesi síðdegis.
Erfið akstursskilyrði og blint í stórhríð á Vestfjörðum á morgun, þá sérstaklega á fjallvegum eins og t.d. Steingrímsfjarðarheiði og Klettshálsi. Útlit fyrir áframhaldandi hríð á þeim slóðum á mánudag.
Umræða

