• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Landssamráðsfundur án samráðs – lögregla hunsar karlkyns þolendur ofbeldis

Landssamráðsfundur án samráðs – lögregla hunsar karlkyns þolendur ofbeldis

,,Forseti Hæstaréttar Íslands var fundarstjóri en hann var formaður Barnaverndar Reykjavíkur á tímum sem drengir voru sendir á Bakkakot"

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. mars 2026
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Árum saman hafa stjórnvöld og hagsmunafélög kvenna dregið upp ranga mynd af ofbeldi í samfélaginu og þaggað umræðu um ofbeldi gegn karlmönnum. Öll umræða og stuðningur hefur snúið að konum. Hér fjalla ég um hvernig opinberir starfsmenn hygla ákveðnum hópum í samfélaginu, og mismuna karlkyns þolendum ofbeldis.

Mikill kynjahalli, villandi tölfræði um ofbeldi

Fyrir 4 árum síðan var haldinn Landssamráðsfundur (2022) gegn ofbeldi, skipulagður af embætti Ríkislögreglustjóra. Átti á fundinum að fjalla um ofbeldi gegn börnum en iðulega var sjónarhorni beint að konum, og talað um þær sem þolendur. Þar voru Samtök um Karlaathvarf hunsuð, ekki boðin þátttaka, og engir er gæta sérstaklega að hagsmunum karlkyns þolenda ofbeldis fengnir til þátttöku. En þarna komu ýmsir fulltrúar fyrir hönd kvennahreyfinga og hinsegin fólks, og einstaklingar sem hafa talað máli kvenkyns þolenda fengu orðið.

Á fyrsta pallborði á fundinum árið 2022 voru bara konur. Algjör kynjaskekkja. Á þessum alls-ekki-samráðs-fundi var ranglega fullyrt að konur væru 80% þolenda og vitnað í tölfræði frá fundinum. Þessi rangfærsla var ekki leiðrétt, heldur hlaut lófaklapp frá fundargestum. Þarna var líka fullyrt að öll tækjum við þátt í gerendamenningu sem stuðlar að kvenfyrirlitningu. Ömurleg staðhæfing sem er hluti af áróðri kvennahreyfinga.

Skipuleggjandi var Eygló Harðardóttir, kona sem hefur talað um feðraveldi og notað sambærileg niðurrifsorð um karlmenn, miðlað lyginni um kynbundið ofbeldi (sem skilst sem svo að ofbeldi sé bundið við konur, sem er alrangt) og talað einhliða um þessi mál fyrir hönd kvenna.

Bendi ég á pistil minn þar sem ég fer yfir lygina um kynbundið ofbeldi, en þeim áróðri tekurstjórnsýsla og kvennahreyfingar þátt í.

Karlmönnum líkt við óða hunda af sviðstjóra lögreglunnar á ráðstefnu 2025

Á síðasta ári (2025) var haldin önnur ráðstefna sem átti að fjalla um vernd barna gegn ofbeldi, en aftur var farið langt út fyrir efnistök og mikið rætt um ofbeldi gegn konum, en ekki körlum. Reyndar var það svo að megn karlfyrirlitning kom fram á fundinum, þar sem röng mynd af ofbeldi var dregin upp og ítrekað máluð dökk mynd af karlmönnum. Þetta er gert þrátt fyrir að fyrir liggi að konur beiti börn oftar ofbeldi, en samt voru karlar, feður og afar, dregnir ofan í svaðið í orðræðu ýmissa fyrirlesara.

Sem dæmi, um hversu ógeðfelld orðræða var viðhöfð, þar sem þátttakendur voru meðal annars dómsmálaráðherra, fulltrúi Ríkislögreglustjóra og ýmsar kvennahreyfingar, þá flutti fyrirlestur sviðstjóri ákærusviðs lögreglunnar, Hildur Sunna Pálmadóttir.

Sagði hún vera í miklu uppáhaldi hjá sér lag þar sem kona drepur karlmann, og fagnaði þeim lagbút. Mjög svo ósmekkleg orðræða frá lögreglu. Hildur Sunna, sviðstjóri ákærusviðs, gekk svo lengra og sagði að ekki tækist nú öllum konum að verjast ofbeldi með þessum hætti (sbr. lagið, að drepa manninn) og þá þyrfti kerfið (lögreglan) að hjálpa til við að fella óðu hundana (karla). Hún sem sagt líkti karlmönnum við óða hunda sem kerfið þurfi að fella.

Þetta er með ólíkindum, og ljóst að karlmenn geta ekki vænst hlutlausrar meðferðar lögreglu uns tekið verði á þessu máli.

Þessi ljóta orðræða gagnvart karlmönnum frá opinberum starfsmönnum er vitnisburður um að áróður stjórnvalda er kominn út í mikla öfga og orðin samþykkt hegðun innan þess hóps.

Forseti hæstaréttar – fundarstjóri á áróðursfundi

Fundarstjóri og klappstýra þessa fundar (2025) þar sem dregin var upp röng mynd af ofbeldi var enginn annar en forseti Hæstaréttar Íslands, Benedikt Bogason. Þrátt fyrir að gerðar voru athugasemdir við þátttöku hans í slíkri áróðursráðstefnu mörgum dögum fyrir fundinn, ákvað dómarinn að mæta og bendla sig við slíka orðræðu.

Dómstólar eiga að vera hlutlausir, ekki þátttakendur í ráðstefnu sem er áróður gegn karlmönnum.

Umræddur Benedikt Bogason var einmitt formaður Barnaverndar Reykjavíkur á tímum sem drengir voru sendir á Bakkakot. Líkt og einn þolandi þess ofbeldis sagði, „kerfið virkaði eins og það átti að virka“, því fólk sem lætur sig ekki varða ofbeldi gegn drengjum og karlmönnum, hannaði kerfið. Og drengirnir voru hunsaðir, líkt og karlkyns þolendur eru hunsaðir í samfélaginu í dag. Enn lætur samfélagið sig ekki varða ofbeldi gegn karlmönnum.

Áróðurinn, lygarnar og skeytingarleysið, allt er þetta lífshættulegt fyrir karlkyns þolendur. Á meðan stjórnvöld taka þátt í að hunsa ofbeldi gegn karlmönnum, horfa í hina áttina, valda þau stórfelldum skaða.

Nýr samráðsfundur en ekkert samráð – áframhaldandi jafnréttisbrot

Í nóvember 2025 var haldinn undirbúningsfundur fyrir Lands(samráðs)fund sem haldinn var 4. mars 2026. Öllum félagasamtökum sem berjast gegn ofbeldi var boðið – nema Samtökum um Karlaathvarf, einu hagsmunasamtökum karlkyns þolenda.

Þegar fulltrúar samtakanna komust að því að halda ætti fund var haft samband við samskiptastjóra Ríkislögreglustjóra, Helenu Rós Sturludóttur og óskað eftir upplýsingum um hverjir skipulegðu dagskrá samráðfundarins. Samskiptastjóri neitaði að veita tilhlýðilegar upplýsingar, neitaði að senda tengiliðsupplýsingar um þá konu sem hefði mestmegnis með dagskrána að gera og hafnaði þátttöku samtakanna, og sagði, að þetta eina hagsmunafélag karlkyns þolenda myndi bara sjá þetta allt þegar dagskráin yrði birt.
Ekkert samráð. Allt unnið út frá hagsmunum kvennahreyfinga og kvenna. Þetta eru ófagleg vinnubrögð þar sem brotið er á jafnræði kynjanna.

Eftir margítrekaðar kröfur um upplýsingar hringdi Eygló Harðardóttir í undirritaðan og var ítarlega rætt nauðsyn þess að fjallað yrði á fundinum um ofbeldi út frá staðreyndum, að ofbeldi er ekki kynbundið heldur eru kynin álíka oft þolendur. Svipta þurfi hulunni af ofbeldi gegn karlmönnum og hætta að draga upp ósannar staðalímyndir.

Á sama tíma og Eygló Harðardóttir staðfesti að Samtök um Kvennaathvarf myndu taka þátt í opinni dagskrá fundarins neitaði hún að lofa Samtökum um Karlaathvarf að taka þátt. Í lok þessa 36 mínútna samtals sagði hún: „Ég verð þá bara að standa og falla með ákvörðun minni“ og undirritaður þóttist heyra að hún vissi vel hve fráleit framkoma þetta væri en vildi engu að síður halda áfram útilokun hagsmunasamtaka karlkyns þolenda.

Að endingu var Samtökum um Karlaathvarf neitað um þátttöku í opinni dagskrá fundarins, þrátt fyrir gríðarlega skekkju frá árinu 2022. Boðin var þátttaka í einhverjum vinnuhópi, í lokuðu rými. Ofbeldi gegn karlmönnum þolir víst ekki dagsljósið.

Lögregla virðir ekki upplýsingalög – sendir villandi, handvalin samskipti

Óskað var eftir öllum samskiptum er tengdust skipulagi á Lands(samráðs)fundinum frá Ríkislögreglustjóra, enda ljóst að hagsmunir ákveðinna kvennahreyfinga voru hafðir að leiðarljósi af lögreglu við skipulagninguna.

Lögregla handvaldi hvaða gögn voru send og sleppti öllum aðalatriðum, og sýnir þannig enn vanvirðingu gagnvart lögum landsins með því að reyna að villa um fyrir Samtökum um Karlaathvarf sem vilja skoða þessi jafnréttisbrot lögreglunnar. Eftir ítrekanir hefur samskiptastjóri nú staðfest að málið er komið aftur í vinnslu, en óvíst hvort hægt sé að treysta lögreglu til að afhenda gögnin m.v. gefna reynslu.

Landssamráðsfundur 2026 – skömminni skárri

Umræddur „samráðsfundur“ var haldinn núna 4. mars. Lögregla byrjaði á að benda á þokkalega tölfræði sem sýnir að kynin verða fyrir álíka miklu ofbeldi skv. rannsóknum sem þeir gera.

Gott og vel.

En stuttu síðar er lögreglan aftur farin að leggja áherslu á tölur um þá sem leita til lögreglu, án þess að setja við það neina fyrirvara. Þar er tölfræðin allt önnur. Karlar leita ekki til lögreglu, sem er áfellisdómur yfir samfélaginu, lögreglunni (með sinn áróður) og úrræðaleysi karlkyns þolenda ofbeldis (ekkert karlaathvarf, sem dæmi). En lögreglan ber þessa tölfræði iðulega á borð þó hún gefi kolranga mynd af heildarumfangi ofbeldis. Þessi ómarktæka tölfræði, um hverjir leiti til lögreglu, endurspeglar ekki heildarfjölda þolenda, en samt nota ýmis áróðursfélög og stofnanir þessar tölur án útskýringa til að villa um fyrir almenningi.

Því skal haldið til haga, að kynjahlutföll höfðu stórbatnað á milli samráðsfundanna. Bætt var við vinnustofu er tengdist karlmönnum (eflaust til málamiðlunar til að friða gagnrýnisraddir, meðal annars Samtaka um Karlaathvarf).

En enn var mikill halli þegar horft er til bakgrunns þátttakenda og hvernig þeir laumuðu aðáróðri og einsleitri umræðu. Í fyrstu pallborðsumræðu var talað um fatlaðar konur af einni konu, erlendar konur af annarri konu og svo meira um konur hitt og þetta af fulltrúa Samtaka um Kvennaathvarf. Enginn fulltrúi var þar til að ræða ofbeldi gegn karlmönnum, og það úrræðaleysið sem þeir standa frammi fyrir og misréttið innan réttarkerfisins. Sú umræða var enn og aftur þögguð með því að útiloka þá er vilja benda á þessa bresti í öryggisnetinu.

Dagskráin bar þess líka augljós merki að einblínt er á ofbeldi þar sem hægt er að draga konur upp sem þolendur, t.d. kynferðisofbeldi. Ekki var rætt um tálmanaofbeldi, sem karlar þola oftast. Ekki var rætt um opinbert níð og skipulagðar netárásir, sem fullorðnir karlmenn þola miklu frekar en konur. Kastljósinu er alltaf beint þangað sem hentar kvenkyns þolendum.

Auk þessa voru á fundinum fulltrúar sem vilja að kerfið viðurkenni og trúi því sem konur segja, skilyrðislaust. Gamla góða tuggan, „trúum í blindni“, hugmyndafræði Metoo var borin á borð þó fráleit sé. Þessar hættulegu hugmyndir grasseruðu á fundinum þó þær flygju lægra en oft áður.

Ýmsir fulltrúar voru þarna mættir sem hafa í gegnum árin talað niðrandi til karla, talað um feðraveldi, og hampað Metoo hugsjónabylgjunni, sem gekk út á opinberar árásir á karlmenn. Þetta eru fulltrúar sem eru Ríkislögreglustjóra að skapi, þó þeir ástundi áróður og niðrandi tal til karlmanna.

Verkefnastjóri 112.is var mætt til að stýra pallborðsumræðu, og einsleitt myndefni af síðunni var mikið notað á fundinum en á vefsíðunni eru nær allir þolendur konur og gerendur málaðir upp sem karlmenn. Vefsíðan er hreinn og klár áróður og Samtök um Karlaathvarf hafa sent inn stjórnsýslukæru vegna þess einsleita myndefnis sem birtist á síðunni.

Þegar horft er til karlkyns þátttakenda þetta árið vekur eftirtekt að flestir voru þeir fulltrúar gerenda. Starf slíkra aðila er auðvitað mjög verðugt. En starf þeirra tónar betur við þær röngu staðalímyndir sem dregnar eru upp af ofbeldi, um að karlmenn séu gerendur. Allt er þetta hluti af viðleitni skipuleggjanda að draga upp rangar og skaðlegar staðalímyndir.

Að karlar séu gerendur. T.d. mætti Agnar Bragason í pallborðsumræðum fyrir hönd Batahús karla, þar sem unnið er með karlkyns gerendur. Ekki þolendur.

Í sömu pallborðsumræðu var svo Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður afstöðu, fanga, gerenda. Allt snýst þetta um að draga upp þessa röngu mynd, karlar gerendur, konur þolendur. Hvers vegna er enn neitað að fjalla um ofbeldi gegn karlmönnum, sem er falið í þögninni, og snýr að helmingi þess ofbeldis sem beitt er? Skýrist það af því, að þeir sem skipuleggja viðburði af þessu tagi hafa um áraraðir haldið úti neikvæðri umræðu um karlmenn … og vilja ekki að sannleikurinn líti dagsins ljós?

Bakgrunnur Eyglóar – er hún hæf til að gæta að hagsmunum beggja kynja?

Eygló Harðardóttir var formaður Kvenréttindafélags Íslands. Það félag réðst einmitt nýlega dólgslega að mönnum sem berjast fyrir réttindum karlmanna. Félagið talar jafnframt niðrandi til karlkyns, um feðraveldi, nauðganamenningu og þvíumlíkt. Skrif Eyglóar bera iðulega með sér sama tón, einhliða og ranga umræðu um kynin og ofbeldi.

Sjá pistil minn um persónuníð Kvenréttindafélags Íslands hérna.

Árið 2016 dró Eygló upp kolranga mynd af kynferðisofbeldi og segir konur 97% þolenda. Bendi ég lesendum á að einu haldbæru gögnin um hverjir séu þolendur koma frá faglega unnum rannsóknum, en þær sýna að karlmenn og konur þola álíka mikið ofbeldi, og því er Eygló bersýnilega að villa um fyrir fólki með að nota slíka tölfræði. Þó einhver munur sé á hversu mikið kynin þola af ólíkum tegundum af ofbeldi, þá eru þessar tölur Eyglóar víðs fjarri sannleikanum.

Ámælisvert er hvernig lögregla hefur reynt að nota tölur um hverjir leiti til lögreglu sem einhverskonar yfirlit yfir heildarþolendur. Svo er auðvitað ekki. Tölurnar eru fyrst og fremst áfellisdómur yfir lögreglu og stjórnvöldum, hvernig karlkyns þolendur hafa verið jaðarsettir og leiti sér því ekki aðstoðar.

Kaldhæðnin er mikil þegar skrif Eyglóar eru skoðuð nánar. Í pistli undir heitinu „Fylgja á lögum um kynjakvóta“ frá 3. september 2013 lagði hún áherslu á jafnan hlut kynjanna, þegar það hentaði. En þetta hafði hún alls ekki til hliðsjónar árið 2022 við dagskrárgerð Lands(samráðs)fundar þar sem kvennahreyfingar og konur máluðu upp einsleita og ranga mynd af ofbeldi.

Hræsni.

Önnur kaldhæðni eru orð Eyglóar sjálfrar, þegar hún ritar í pistli 2015: „Því stefnum við á næstu árum að því að auka þátttöku karla og drengja í öllu jafnréttisstarfi og umræðum um jafnréttismál.“ og árið 2014 ritaði hún „og mér er ofarlega í huga hvernig við getum virkjað karlmenn betur í jafnréttisbaráttunni,“ … en þetta eru orðin innantóm, því Eygló lokaði á þátttöku karlmanna í mikilvægri umræðu um ofbeldi (2026), og felur þannig stærsta
vandann í baráttunni við ofbeldi, það er, þöggun á ofbeldi sem beinist gegn karlmönnum. Greinar og pistlar Eyglóar um ofbeldi eða samskipti kynjanna snúast um konur. Hún nefnir þó karla í skrifum sínum, þegar hún talar um úrræði fyrir gerendur. Hún nefnir líka karla þegar hún krefur þá um að styðja við baráttu kvenna. Þessi gríðarlega skekkja hennar endurspeglast svo í starfi fyrir Ríkislögreglustjóra.

Það er grátlegt að sjá svona háttalag frá fyrrverandi jafnréttisráðherra.

Hættum áróðri um ofbeldi – tölum um hlutina út frá staðreyndum

Stjórnvöld verða að hætta fölskum áróðri og jafnréttisbrotum. Stjórnvöld verða að hætta að velja inn í dagskrá einsleita fulltrúa og loka á hagsmunasamtök karlkyns þolenda. Með því að ljá bara kvennahreyfingum orðið er dregin upp röng mynd af málaflokknum. Rangar staðalímyndir um að karlmenn séu ekki þolendur ofbeldis valda því að þeir leita sér síður aðstoðar.

Þeir burðast með raunir sínar í þögninni, og gerendurnir komast áfram upp með ofbeldið.

Fyrir liggur að Ríkislögreglustjóri sýndi einbeittan vilja til að þagga rödd karlkyns þolenda. Fyrir liggur að Samtökum um Karlaathvarf var neitað um að taka þátt í opinni dagskrá fundarins þrátt fyrir áraraða þöggun á ofbeldi gegn karlmönnum. Það var brýnt að samtökin tækju þátt en stjórnvöld vilja ekki fjalla um staðreyndir tengdar ofbeldi.

Fyrir liggur að dagskrá fundarins 2026 ber enn þess merki að mikill kynjahalli er til staðar og rætt er um ofbeldi á forsendum kvenna.

Ríkislögreglustjóri braut alvarlega á jafnræðisreglu Stjórnarskrár Íslands, bæði árið 2022 og aftur nú í ár, 2026, með því að hleypa ekki inn í opna dagskrá einu hagsmunasamtökum karlkyns þolenda (félagasamtökunum var ekki einu sinni boðið á undirbúningsfund!).

Með því að neita að ræða opinskátt um karlmenn sem þolendur verður öll barátta gegn ofbeldi marklaus.

Höfundur er baráttumaður fyrir raunverulegu jafnrétti, og sjálfboðaliði hjá Samtökum um Karlaathvarf
Huginn Þór Grétarsson

Huginn Þór Grétarson
Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Næsta lægð er væntanleg

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Landssamráðsfundur án samráðs – lögregla hunsar karlkyns þolendur ofbeldis

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?