Ný framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila á landsvísu gerir ráð fyrir mikilli fjölgun hjúkrunarrýma og viðsnúningi á biðlistum næstu árin. Uppbygging hjúkrunarheimila heyrir undir Ingu Sæland sem kynnti áætlunina í dag.
- 1.507 hjúkrunarrými verða tekin í notkun fyrir lok árs 2030.
- Af þeim verða ný hjúkrunarrými alls 1.355 talsins.
- 90% af þeim hjúkrunarrýmum sem tekin verða í gagnið verða þannig hrein viðbót við hjúkrunarrýmin sem þegar eru til staðar út um landið.
- 10% eru endurbætur á eldri rýmum – samtals 152 hjúkrunarrými.

Í árslok 2025 voru 3.062 hjúkrunarrými á landinu öllu en samkvæmt framkvæmdaáætluninni verða þau orðin 4.417 árið 2030.
Nýju rýmin skiptast þannig að á höfuðborgarsvæðinu er gert ráð fyrir 897 nýjum rýmum, 146 nýjum rýmum á Norðurlandi, 140 á Suðurnesjum, 72 á Suðurlandi, 60 á Vesturlandi, 20 á Vestfjörðum og 10 á Austurlandi.
Þegar fjölgun hjúkrunarrýma í framkvæmdaáætluninni er sett í samhengi við metna þörf á hverju ári samkvæmt spám heilbrigðisráðuneytisins sést að gert er ráð fyrir að biðlistar minnki jafnt og þétt næstu árin:

Í töflunni er tekið tillit til mannfjöldaþróunar og öldrun þjóðarinnar. Talan 75% í dálki tvö vísar í það markmið stjórnvalda að 75% einstaklinga með samþykkt færni- og heilsumat fái hjúkrunarrými innan 90 daga. Færni- og heilsumat er mat á þörfum einstaklinga fyrir varanlega búsetu á hjúkrunar- og dvalarheimilum.
Um afar metnaðarfull markmið er að ræða og áformin ýmsu háð, svo sem skipulagshraða í sveitarfélögum, hraða í útboðsferlum og uppbyggingarhraða.
- Gangi áformin eftir er gert ráð fyrir að árin 2029 og 2030 verði staðan orðin þannig að tæplega 100 einstaklingar verði í svokölluðum biðrýmum þaðan sem þeir fara áfram á hjúkrunarheimili og að fjöldi þeirra sem eru á biðlista og ekki í biðrýmum verði kominn niður í núll.
„Áætlun sem markar algjör þáttaskil“
„Áætlunin sem ég kynni í dag markar algjör þáttaskil í þjóðarátaki ríkisstjórnarinnar í uppbyggingu hjúkrunarrýma,“ segir Inga Sæland.
„Ég hef lagt hug og hjarta í það að tryggja að fullorðna fólkið okkar fái notið allrar þjónustu og alúðar á efsta æviskeiðinu. Markmiðið er skýrt: Enginn á að þurfa að vera á biðlista og í óöryggi án umhyggju og þeirrar þjónustu sem okkur er skylt að veita.“
Nýtt hjúkrunarheimili við Vetrarmýri í Garðabæ
Í framkvæmdaáætluninni er áætlun um kostnað við uppbyggingu og rekstur hjúkrunarrýmanna sem aftur mótar grunn að tillögum fyrir fjármálaáætlun 2027-2031. Samkvæmt nýrri aðferðafræði býður ríkið út uppbyggingu hjúkrunarheimila og leigir heimilin til baka á grundvelli leigusamnings til 20-30 ára.
Kynningin á framkvæmdaáætluninni fór fram í Ísafold sem er hjúkrunarheimili Hrafnistu í Sjálandi í Garðabæ. Við sama tækifæri undirrituðu Inga Sæland og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, samning um nýtt hjúkrunarheimili við Vetrarmýri með allt að 100 hjúkrunarrýmum. Gert er ráð fyrir að nýja hjúkrunarheimilið opni árið 2029.
Fjölmargir áfangar síðastliðna mánuði
Uppbygging hjúkrunarheimila færðist með forsetaúrskurði yfir til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins þann 15. mars 2025. Málaflokkurinn er enn þar en Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, fer fyrir honum samkvæmt forsetaúrskurði frá 16. janúar sl.
Eftirfarandi áfangar hafa náðst frá 15. mars 2025 – sjá einnig yfirlit yfir þá alla í einu skjali: Áfangar síðastliðna mánuði
- Þann 19. mars 2025 var tilkynnt að samkomulag væri í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila.
- Í byrjun maí var fyrsta skóflustungan tekin að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði.
- Nokkrum dögum síðar mundaði þáverandi félags- og húsnæðismálaráðherra sleggju við Nauthólsveg í Reykjavík en þar verður ráðist í gagngerar endurbætur á húsnæði sem breytt verður í hjúkrunarheimili.
- Undir lok maímánaðar var ráðherra á Akureyri vegna samkomulags um nýtt hjúkrunarheimili í Þursaholti.
-
- Sama dag fór ráðherra á Húsavík en þar hefur kyrrstaða nú verið rofin um hjúkrunarheimili sem beðið hefur verið eftir svo árum skiptir.
- Þann 16. júní var samkomulagið sem náðist milli ríkis og sveitarfélaga í mars fest í lög.
- Þann 1. júlí var nýtt samkomulag undirritað um þreföldun hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ.
- Þremur dögum síðar var skóflustunga tekin að stækkun hjúkrunarheimilisins í Sóltúni í Reykjavík.
- Nýtt hjúkrunarheimili í Boðaþingi í Kópavogi var opnað þann 2. september að viðstöddum ráðherrum, bæjarstjóra og fleirum.
- Þann 8. janúar 2026 var viljayfirlýsing undirrituð um uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis í Hafnarfirði.
- Nýtt hjúkrunarheimili var opnað við Nesvelli í Reykjanesbæ þann 15. janúar að viðstöddum ráðherrum, bæjarstjóra og fleirum.
- Á næstunni opnar nýtt hjúkrunarheimili í Urðarhvarfi í Kópavogi. Jafnframt er gert ráð fyrir að ný hjúkrunarrými verði tekin í notkun á Höfn í Hornafirði síðari hluta þessa árs.
- Alls er því búið að opna eða koma í farveg samtals 846 hjúkrunarrýmum frá því 15. mars síðastliðinn, þar af 720 nýjum hjúkrunarrýmum.
Yfirlit í einu skjali: Áfangar síðastliðna mánuði



.jpg?proc=LargeImage)
%20-%20Copy%20(1).jpg)

