• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Getur munað allt að 100 þúsund krónum á ári að velja ódýrasta bensínið

Fákeppni: Verði stýrt af einum aðila og hinir fylgja í kjölfarið

Á Íslandi ríki í dag fákeppni þar sem að verðinu sé stýrt af einum aðila og að hinir fylgi í kjölfarið

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. mars 2026
in Fréttir, Innlent, Neytendur, Viðskipti
A A
0

„Þegar að heimsmarkaðurinn lækkar, þá virðist verðið svona síga niður eins og það sé verið að sleppa fjöður lausri, en þegar að verð hækkar, þá fer það frekar upp eins og raketta,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifereiðaeigenda, FÍB, í kvöldfréttatíma Sýnar.

Þar segir hann að FÍB hafi gagnrýnt olíufélögin fyrir að hafa ekki „skilað eðlilegri lækkun á álagningu til neytenda þegar urðu skattabreytingar“.

Álagning hafi bein áhrif á landsmenn

FÍB skrifar

Runólfur hafði einnig orð á því að álagning hafi bein áhrif á landsmenn og að hver króna skili sér sem upphæð úr vasa neytenda yfir árið. Runólfur vitnar í greiningu sem Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur stéttarfélagsins Visku, birti í dag. Þar kemur fram að álagning á hvern bensínlítra hafi aukist verulega undanfarin fimm ár og hafi svo náð hæstu hæðum hingað til fyrstu tvo mánuði þessa árs.

Eldsneytisverð á Íslandi er einfaldlega miklu hærra en það þarf að vera vegna fákeppninnar

„Eldsneytisverð á Íslandi er einfaldlega miklu hærra en það þarf að vera vegna fákeppninnar sem einkennir íslenska markaðinn,“ segir Vilhjálmur í greiningunni.

Runólfur vitnar í þessi orð Vilhjálms og segir það því miður vera rétt sem kom fram í gögnunum og að sömu atriði megi finna í gögnum Samkeppniseftirlitsins. Hann segir að þrátt fyrir að vera „enginn talsmaður opinberra afskipta af mörkuðum“ þá þurfi einhvers konar aðhald að koma til. Á Íslandi ríki í dag fákeppni þar sem að verðinu sé stýrt af einum aðila og að hinir fylgi í kjölfarið.

„Við sjáum það á stærri mörkuðum, eins og til dæmis í Belgíu, Danmörku, Þýskalandi og bara mjög víða í Evrópu að stjórnvöld eru með puttann á svona neysluvöru eins og eldsneyti og setja jafnvel verðþak eins og í Belgíu. Það miðar þá við að verð megi ekki fara yfir það og enginn á markaðnum er að bjóða það verð. Þannig að allir sigla einhvers staðar þar undir,“ sagði Runólfur Ólafsson.

ASÍ hefur þungar áhyggjur af hækkunum á bensínverði og áhrifum þeirra á veðbólgu

Fram kemur á visir.is að ASÍ hefur þungar áhyggjur af hækkunum á bensínverði og áhrifum þeirra á veðbólgu. Álagning olíufélaga hafi verið í sögulegu hámarki og afkoma þeirra sterk. Engar forsendur séu fyrir því að hleypa hækkunum á heimsmarkaðsverði að fullu út í verðlag og stjórnvöldum beri að sýna aðhald.

Heimsmarkaðsverð olíu hefur hækkað undanfarið vegna átaka í Miðausturlöndum og Róbert Farestveit, sviðsstjóri hagfræði- og greiningasviðs hjá Alþýðusambandi Íslands, bendir á að meðalbensínverð hafi hækkað um fimm til sex prósent á milli mánaða hér á landi. Hann hafi þungar áhyggjur af stöðunni og sérstaklega með tilliti til þess að forsendur kjarasamninga verða endurskoðaðar í haust.

„Þetta mun hafa nokkur áhrif inn í verðbólgumælinguna sem kemur í lok mánaðar. Við bentum á það í byrjun árs, í samhengi við upptöku kílómetragjaldsins, að álagning olíufélaganna væri sögulega há og hún hefur hækkað síðustu ár. Þá hefur afkoman verið sterk þannig að við teljum í sjálfu sér enga forsendu fyrir því að þessum hækkunum sé hleypt af fullum þunga út í smásöluverðið,“ segir Róbert m.a. í samtalinu á visir.is.

 

Viðtalið við Runólf í held sinni má nálgast hér.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • 120 félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness sviptir góðum tekjumöguleikum

    Hvað kom fyrir Vilhjálm Birgisson verkalýðsleiðtoga?

    128 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • ,,Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni sem varða við lög“

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • ,,Hræðsluáróðri hefur verið beitt eins og svipu“

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Hvert fóru þessir 23 milljarðar?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Næsta lægð er væntanleg

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?