• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hvað aðgerðir eru í gangi og fyrirhugaðar til að útrýma fátækt á Íslandi?

Þuríður Harpa Sigurðardóttir

,,Hræðsluáróðri hefur verið beitt eins og svipu“

,,Hagfræðingar hafa skáldað upp ýmis dæmi sem eiga sér ekki stoð í raunveruleikanum"

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. mars 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Á dagskrá Alþingis í dag er3ja umræða um Almannatryggingar (launavísitala), 155. mál, lagafrumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra. Nú er mál að linni, ég vona að frumvarpið gangi í gegn og verði að lögum, loksins. Við sem erum metin með örorku og þau sem eru á endurhæfingalífeyri hafa mátt sitja undir afar óvæginni orðræðu minnihlutans á Alþingi, þá hafa ýmis öfl í samfélagi okkar s.s. SA, sum verkalýðsfélög og læknafélagið setið á rökstólum með hagfræðingum og varað við að lífeyrir yrði tengdur launavísitölu.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar

Hræðsluáróðri hefur verið beitt eins og svipu á þau sem þurfa að lifa á örorkulífeyrir, það SKAL verða þeirra að axla ábyrgðina á að efnahagur Íslands fari á annan endann.

Þingmenn hafa leyft sér orðræðu sem á ekki bara að niðurlægja fólk heldur særa það, orðræðu sem ætluð er til að smætta manneskjur sem veikst hafa, sem slasast hafa eða fæðst með skerðingar.

Framkoma þingfólks, stjórnenda fyrirtækja og samtaka, verkalýðsfélaga, lækna, hagfræðinga og annarra sem tekið hafa þátt, vitnar best um fordóma, skilningsleysi og mannfyrirlitningu þeirra sem þar hafa talað.

Ung vinkona mín er öryrki, hún er veik, og með ýmsar skerðingar vegna sinna veikinda. Hún sendi mér greiðsluseðil sinn sem sýndi að hún fékk 278.000 kr. útborgaðar frá TR, hún á nær engan rétt í lífeyrissjóðum enda verið lítið á vinnumarkaði. Hún borgar yfir 200.000 kr. í leigu, og hún er raunverulegt dæmi. Það er dagljóst að hennar framfærsla er of lág.

Hér hefur orðræða fólks snúist um að öryrkjar vilji ekki vera á vinnumarkaði að þau hafi það betra á bótum og ef þau hafi vinnu þá gætu þau verið með hærra útborgað en vinnufélaginn. Ég er viss um að vinnufélaginn vildi ekki skipta við öryrkjann þó öryrkinn hefði eitthvað örlítið meira í vasann, flestir vita að öryrkjar borga meira í lyf, sérfræðinga og annað heilbrigðistengt en almenningur og að veikindi eða skerðingar af öðrum toga er bara drulluerfitt að díla við í daglegu lífi, alla daga.

Hagfræðingar hafa skáldað upp ýmis dæmi sem eiga sér ekki stoð í raunveruleikanum. Raunveruleikinn er nefnilega sá að þau sem geta unnið eitthvað reyna að fá vinnu og reyna að vera á vinnumarkaði. Mörg geta hins vegar alls ekki unnið og önnur fá engin atvinnutilboð.
Þetta fólk, sem beitt hefur svipunni á hóp öryrkja, þarf að átta sig á, að þau sem eru með örorkumat eru það vegna þess að þau hafa skerta starfsorku og getu til að sinna vinnu eða yfirleitt hverju öðru sem fólk almennt sinnir.

Hræðsluáróður er undarlegt vopn sem sum hafa kosið að beita á hópa fólks í þeim tilgangi að halda fólki í fátækt og vonleysi og skömm.
Ég vona svo sannarlega að frumvarpið verði að lögum í dag, að fólk á lífeyrir fái sömu hækkanir á lífeyrinn eins og annað fólk fær á sín laun, enda er samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks orðinn að lögum og þar er þetta dregið fram.

Ég vil þakka ríkisstjórninni og Ingu Sæland fyrir að koma þessu máli á koppinn. En ríkið er sá aðili sem hefur með kjör öryrkja og annarra lífeyristaka að gera.
Verkalýðsfélög verja ekki þann hóp sem einu sinni var þeirra og borgaði stéttarfélagsgjöld og fleira. Það er nefnilega þannig að fæstir eru á lágmarkslaunum út lífið og flest geta aukið við sig vinnu til að bæta sinn hag. Það geta öryrkjar ekki af augljósum ástæðum sem allir ættu auðvitað að sjá.

Ég trúi því að efnahagur Íslands og íslenskur almenningur (og jafnvel auðmenn) lifi það af að lífeyrir verði tengdur við launavísitölu. Ég trúi því að íslenskt efnahagslíf verði jafn stöðugt eða óstöðugt og áður, en umfram allt þá trúi ég að þetta sé jöfnunaraðgerð sem bæti hag lífeyristaka. Ekki veitir af!

Umræða
Share6Tweet4
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Dómgreindarleysi að ætla að stökkva úr Stjórnarráðinu á Bessastaði“

    ,,Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni sem varða við lög“

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Hvað kom fyrir Vilhjálm Birgisson verkalýðsleiðtoga?

    128 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • ,,Hræðsluáróðri hefur verið beitt eins og svipu“

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Hvert fóru þessir 23 milljarðar?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Næsta lægð er væntanleg

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?