Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í dag að hækka stýrivexti úr 7,25 prósentum í 7,50 prósent. Hún vísar til aukinnar verðbólgu þrátt fyrir hægari efnahagsumsvif
Ásgeir Jónsson las upp yfirlýsingu peningastefnunefndar. Þar kom fram að vextir bankans verði hækkaðir um 0,25 prósentur. Meginvextir verða því 7,5%. „Breytinguna má rekja til hækkunnar á opinberum gjöldum og afleiddra áhrifa. Þá bættist við áhrif kjarasamningsbundnda launahækkana á almennum markaði í byrjun árs,“ sagði Ásgeir.
Seðlabankinn hefur misst tökin
„Það er ljóst að þjóðarbúið er komið í vanda þegar peningastefnunefnd ákveður að hækka vexti vegna vaxandi verðbólgu á sama tíma og dregur úr efnahagsumsvifum,“ segir Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri og forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, í samtali við mbl.is um 0,25 prósentustiga stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands í morgun.

