Samkvæmt heimildum DV mæltu þrír Íslendingar sér mót við Palestínumenn til að innheimta peningaskuld. Hittist hópurinn utandyra og var innheimtutilraunum svarað með lífshættulegu ofbeldi. Tugir manna voru á vettvangi þegar átökin hófust, flestir Palestínumenn.
Í tilkynningu lögreglu segir:
Fimm karlar voru í gærkvöld í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegi líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík aðfaranótt þriðjudags, en tilkynning um málið barst lögreglu á öðrum tímanum í fyrrinótt. Fjórir mannanna voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til föstudags og sá fimmti til miðvikudags í næstu viku.
Þeir eru taldir hafa ráðist að þremur mönnum og slasaðist einn þeirra sýnu mestu, en sá var fluttur á Landspítalann og síðan færður þar á gjörgæsludeild. Hinir tveir slösuðust minna, en árásin var lífshættuleg. Upphaflega voru sjö menn handteknir vegna málsins, en tveimur þeirra hefur verið sleppt úr haldi lögreglu.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu.

