Yfirgnæfandi meirihluti vill að Íslendingar hætti að greiða fyrir losunarheimildir
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu vill að Íslendingar hætti að greiða fyrir losunarheimildir vegna loftslagsmála. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Eiga Íslendingar að hætta að greiða fyrir losunarheimildir vegna loftlagsmála?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 92,57%
Nei: 5,57%
Hlutlaus: 1,86%
Umræða

