Pétur Gautur myndlistarmaður varð fyrir miklu áfalli þegar hann var algjörlega upp úr þurru og án nokkurs tilefnis, sakaður um barnaníð. Þetta gerðist á Facebook-síðunni „Áfram Stelpur!“ sem er þekkt fyrir tilhæfulausar ásakanir á hendur karlmönnum samkvæmt heimildum. Pétur mun kæra þessar ómerku og tilhæfulausu ásakanir enda varða þær við hegningarlög
„Þetta er hrikalegt. Myndbirting og allt. Ég sé ekki þessa síðu en viðkomandi hefur sett tvær færslur þarna inn. Hún bauð mér ekki einu sinni að kynna mér málin,“ Í gær tók afastrákur Péturs eftir því að það var kona fyrir utan að taka myndir. Pétur Gautur kippti sér ekkert upp við það enda alvanur því að túristar stoppi fyrir utan vinnustofu hans. Fjallað er ítarlega um þessa hrottalegu árás og brot á friðhelgi einkalífs Péturs á fréttavefnum Visir.is. Þá má reikna með að færslan muni hafa alvarlegar afleiðingar.

„Þetta var bara í gær um miðjan dag. Drengurinn býr í næsta húsi og er hér eins og kötturinn. Ég bara skil þetta ekki, sextugur karlinn að verða fyrir þessu. Ég hef verið með vinnustofu hér í mörg ár og drengurinn hefur hlaupið til mín síðan hann var fimm ára gamall. Hann hefur unun af því að koma hingað og teikna.“ Segir í fréttinni.
Svo var honum gert viðvart um færslu á femínistavefnum „Áfram stelpur!“ en kunnugt er um fleiri tilhæfulausar ásakanir á hendur karlmönnum á þeirri síðu.
Neituðu að taka niður upplogna níðgrein

Pétur hringdi í lögregluna í morgun og tilkynnt þessa tilhæfulausu aðför og mannorðsmorð. „Ég er eiginlega að bíða eftir því að þeir hringi. Ég á að koma til þeirra og gefa skýrslu. Ég veit að dóttir mín talaði við „admin“ fyrir þessa síðu og bað hana að taka þetta út, þetta væri misskilningur, en ekki var orðið við því.“
Pétur Gautur ætlar að ef dóttir hans gat fundið út hver stýrir síðunni og hver skrifaði þá ætti lögreglan að geta fundið það út.
„Og það er þá hægt að kæra hana því þetta er bannað með lögum. En þessar stelpur eru vitlausar, við að bjarga heiminum. Það er ömurlegt að verða fyrir þessu.“
Þetta er of klikkað til að kæra ekki
Pétur Gautur segist ekki geta gert neitt annað en kært þennan áburð. „Þetta er of klikkað. Þetta eru of alvarlegar ásakanir,“ segir Pétur Gautur.
„Hún talar um að hafa séð inn um dyrnar gamla dýnu á gólfinu með kodda?“ Það eigi sér eðlilegar útskýringar.
„Þetta er bæli hennar Tosku minnar, sem er að verða 45 kíló, ekki orðin eins árs. Hún er dálítið stór. Hún lagði svo saman tvo og tvo og fékk út sex, í bókstaflegum skilningi. En þetta er leiðinlegt.“ Hundur Péturs Gauts er fjallahundur frá Sviss af Berner Sennenhund-kyni eða „Bernese Mountain Dog“ eins og þeir eru kallaðir í Ameríku. Og vilja helst alltaf liggja úti í frosti og snjó. Segir í frétt á Vísi.is

