Sparisjóðurinn indó hefur ákveðið að halda vöxtum óbreyttum þrátt fyrir stýrivaxtahækkun peningastefnunefndar Seðlabankans
Í tilkynningu frá sparisjóðnum kemur fram að ákvörðunin sé tekin með það að leiðarljósi að halda lánavöxtum sem lægstum fyrir almenning í landinu.
„Með þessu vill indó draga úr áhrifum hækkandi vaxta á íslensk heimili og stuðla að auknum fyrirsjáanleika í fjármálum viðskiptavina,“ segir í tilkynningunni.
Vextir indó verða því áfram eftirfarandi:
- Vextir á debetreikning: 1,00%
- Vextir á sparibaukum: 6,10%
- Vextir á yfirdrætti í endurgreiðsluplani: 12,00%
- Vextir á yfirdrætti án endurgreiðsluplani: 14,00%
- Vextir á færslusplitti: 14,00%
- Vextir á Síðustu matarkörfunni: 0%
Umræða

