• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 19. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Aukið samstarf við ESB á sviði öryggis- og varnarmála

Aukið samstarf við ESB á sviði öryggis- og varnarmála

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. mars 2026
in Erlent, Fréttir
A A
0

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins (ESB), undirrituðu samstarfsyfirlýsingu um öryggis- og varnarmál í Brussel í dag. 

„Á þeim miklu óvissutímum sem við nú lifum á alþjóðavettvangi er þessi  samstarfsyfirlýsing í takt við okkar áherslur um að styrkja og efla samstarf á sviði öryggis- og varnarmála við okkar helstu bandalagsríki og samstarfsaðila. Við höfum nýlega undirritað viljayfirlýsingar við Þýskaland og Finnland í varnarmálum og nú styrkjum við tengslin við Evrópusambandið. Aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningurinn við Bandaríkin eru eftir sem áður tvær meginstoðir okkar varna,“ segir Þorgerður Katrín.

Með samstarfsyfirlýsingunni er áréttaður pólitískur vilji Íslands og Evrópusambandsins um aukið samstarf á sviði öryggis- og varnarmála. Hún er ekki skuldbindandi og felur ekki í sér kvaðir um framlög eða þátttöku Íslands í verkefnum ESB.

Þorgerður Katrín og Kallas funduðu sömuleiðis þar sem málefni Úkraínu, staða mála í Mið Austurlöndum, viðbrögð við fjölþáttaógnum og þingsályktunartillaga um að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við ESB voru í brennidepli.

Þá hitti utanríksráðherra Maroš Šefčovič, framkvæmdastjóra hjá ESB sem er ábyrgur fyrir utanríkisviðskiptum og samskiptum við Ísland, sömuleiðis að máli í dag. Þar var farið yfir stöðu mála í alþjóðaviðskiptum og rætt um efnahagslegt öryggi, framkvæmd EES-samningsins og þingsályktunartillögu um að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands.

Sameiginlega fréttatilkynningu Íslands og ESB á ensku má lesa hér.

Ræddi undirbúning fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins

Fyrsti fundur Þorgerðar Katrínar í dag var með varaframkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, Radmila Shekerinska, í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel. Ræddu þær undirbúning fyrir leiðtogafund bandalagsins í Ankara í júlí næstkomandi, en áframhaldandi aukin framlög til varnarmála og stuðningur við Úkraínu verða þar meðal helstu mála.

Atlantshafstengslin og aukin ábyrgð bandalagsríkja í Evrópu á vörnum álfunnar voru sömuleiðis til umræðu, sem og átökin í Íran og víðar í Mið Austurlöndum. Þá ræddu þær öryggi og varnir á norðurslóðum, þar á meðal nýja árvekniaðgerð bandalagsins, Arctic Sentry, með þátttöku Íslands. Að lokum ræddu þær samstarf Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins sem hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár.

„Atlantshafsbandalagið er hornsteinn í varnar- og öryggisstefnu Íslands og mikilvægt að eiga í reglubundnu samráði við æðsta embættisfólk bandalagsins. Ísland hefur aukið varnartengd framlög á undanförnum árum og við höldum áfram á þeirri braut. Þetta eru viðsjárverðir tímar og mikilvægt að treysta Atlantshafstengslin og á sama tíma aukið samstarf innan Evrópu,” segir Þorgerður Katrín. 

  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ásamt Radmila Shekerinska varaframkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. - mynd
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Maroš Šefčovič, framkvæmdastjóra hjá ESB sem er ábyrgur fyrir utanríkisviðskiptum og samskiptum við Ísland. - mynd
  • Frá tvíðhliðafundi Þorgerðar Katrínar og Kaja Kallas í dag. - mynd
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Kaja Kallas utanríkismálastjóri Evrópusambandsins að lokinni undirskrift. - mynd
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

    Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Líshættuleg líkamsárás er Palestínumenn og Íslendingar hittust

    62 deilingar
    Share 25 Tweet 16
  • Neituðu að taka niður upplogna níðgrein um meint barnaníð

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • ,,Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni sem varða við lög“

    108 deilingar
    Share 43 Tweet 27
  • ,,Hræðsluáróðri hefur verið beitt eins og svipu“

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?