Vinnuslys varð í Reykjavík í morgun þegar þar varð sprenging í húsi í Korngörðum, en tilkynning um málið barst lögreglu rétt fyrir klukkan hálfátta
Viðbragðsaðilar héldu strax á vettvang, en ljóst er að um alvarlegan atburð er að ræða. Það eru eindregin tilmæli frá lögreglu að fólk haldi sig fjarri staðnum, bæði til að trufla ekki störf viðbragðsaðila og eins til að tryggja greiða aðkomu þeirra til og frá vettvangi.
Frekari upplýsingar verða veittar eftir því sem vinnu viðbragðsaðila vindur fram.
Umræða

