Hugleiðingar veðurfræðings
Nokkuð djúp lægð þokast norðaustur milli Grænlands og Vestfjarða í dag. Hún veldur suðvestan hvassviðri eða stormi með éljagangi og það eru gular viðvaranir í gildi á sunnan- og vestanverðu landinu. Austurland sleppur þó að mestu við élin.
Lægðin grynnist á morgun, það fer að lægja og úrkoman minnkar. Annað kvöld nálgast næsta lægð úr suðri. Hún fer væntanlega í norðaustur skammt fyrir sunnan og austan land. Aðfaranótt sunnudags er spáð norðvestan hríðarveðri, einkum á austanverðu landinu. Síðan ætti veðrið að ganga tiltölulega fljótt niður þegar lægðin fjarlægist, en víða má búast við éljum seinnipartinn á sunnudag.
Það er útlit fyrir áframhaldandi lægðagang eftir helgi, með öðrum orðum umhleypingasamt veður. Spá gerð: 20.03.2026 06:28. Gildir til: 21.03.2026 00:00.
Gul viðvörun vegna veðurs: Höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirðir, Suðausturland, Miðhálendi og Strandir og norðurland vestra Meira
Veðurhorfur á landinu
Suðvestan 15-23 m/s og dimm él, en heldur hægari og yfirleitt þurrt á Austurlandi. Frost víða 0 til 6 stig.
Lægir smám saman á morgun, en áfram él. Hiti kringum frostmark. Snýst í austan- og norðaustan 8-15 með snjókomu eða rigningu sunnan- og austantil annað kvöld. Spá gerð: 20.03.2026 10:01. Gildir til: 22.03.2026 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Norðvestan 15-25 m/s suðaustan- og austanlands um morguninn, hvassast syðst, annars hægari. Víða snjókoma. Dregur síðan úr vindi, él í flestum landshlutum seinnipartinn og frost 0 til 8 stig.
Á mánudag:
Vaxandi austanátt og dálítil él. Austan og norðaustan 15-23 og snjókoma síðdegis, en slydda eða rigning syðst. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag:
Norðan 10-18 og snjókoma, en úrkomulítið sunnantil. Frost 0 til 7 stig.
Á miðvikudag:
Norðvestanátt og él, en yfirleitt bjart sunnan heiða. Kalt í veðri.
Á fimmtudag:
Suðaustanátt og snjókoma eða slydda, en úrkomuminna norðaustantil. Dregur úr frosti.
Spá gerð: 20.03.2026 08:41. Gildir til: 27.03.2026 12:00.


