• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 20. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi

Starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. mars 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað starfshóp um nýtt húsnæðislánakerfi

„Skipun hópsins er í samræmi við áherslur stjórnvalda í húsnæðismálum. Nýlegar breytingar á lánamarkaði síðastliðna mánuði í tengslum við vaxtadómana svokölluðu hafa undirstrikað nauðsyn þess að greina hvort koma megi á sanngjarnara og gagnsærra húsnæðislánakerfi hér á landi til lengri tíma litið,“ segir Ragnar Þór.

„Um leið er brýnt að greina til skemmri tíma hvort gera þurfi breytingar á núverandi lagaumgjörð fasteignalána til neytenda til að tryggja neytendavernd. Þetta eru mikilvæg verkefni sem stjórnvöld vilja ná vandlega utan um.“

Verkefni starfshópsins eru:

  • Að kortleggja nýlegar breytingar á lánaframboði og áhrif þeirra á neytendur – og greina í kjölfarið hvort gera þurfi breytingar á löggjöf um fasteignalán til neytenda. Þetta er gert til að stuðla að því að staða lántaka sé ekki lakari en hún var fyrir áðurnefnda vaxtadóma.
  • Að greina hvort og þá hvernig taka megi upp nýtt húsnæðislánakerfi hér á landi með það fyrir augum að innleiða kerfi sem tryggi meira gagnsæi, sveigjanleika og fyrirsjáanleika fyrir neytendur. Erlendar fyrirmyndir verða hafðar til hliðsjónar og rýnt í kosti og galla annarra húsnæðislánakerfa, einkum í nágrannaríkjunum.

Formaður starfshópsins er Marinó G. Njálsson og í hópnum eiga sæti fulltrúar frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, ASÍ, BHM, BSRB, fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Hagsmunasamtökum heimilanna, Landssamtökum lífeyrissjóða, Neytendasamtökunum, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Seðlabanka Íslands.

Með hópnum starfar sérfræðingur á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Viðvörun: Djúp lægð með hvassviðri, stormi og éljagangi

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Neituðu að taka niður upplogna níðgrein um meint barnaníð

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • ,,Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni sem varða við lög“

    116 deilingar
    Share 46 Tweet 29
  • Líshættuleg líkamsárás er Palestínumenn og Íslendingar hittust

    69 deilingar
    Share 28 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?