• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 20. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

Óþekkti embættismaðurinn

Báknið minnkað: Starfleyfisskyldu létt af sextán flokkum atvinnurekstrar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. mars 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur undirritað reglugerð sem léttir starfsleyfisskyldu af 16 flokkum atvinnurekstrar, með breytingum á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 830/2022 sem tekið hefur gildi

Breytingarnar fela í sér að einvörðungu er gerð krafa um skráningu atvinnurekstrar, í stað starfsleyfisskyldu áður. Meðal þeirra 16 flokka atvinnurekstrar sem nú teljast skráningaskyldir eru dýralæknastofur, gæludýraverslanir, heilsugæslustöðvar, heilsuræktarstöðvar, húðflúrstofur, íþróttahús og leiksvæði.

Skráning felur í sér skráningu tiltekins atvinnurekstrar sem tiltekinn er í viðauka reglugerðarinnar í miðlæga rafræna gátt í stað starfsleyfisskyldu og hefur Umhverfis- og orkustofnun gefið út uppfærð samræmd starfsleyfisskilyrði. Skráning er ekki auglýst í fjórar vikur líkt og starfsleyfi og ekki er gefin út greinargerð fyrir skráningu. Skráning er ótímabundin en starfsleyfi er gefið út til tiltekins tíma. Sé starfsemi hins vegar bæði starfsleyfisskyld og skráningarskyld þá vegur starfsleyfisskyldan þyngra en skráningin og aðeins þarf að sækja um starfsleyfi.

Enn frekari einföldun er í farvatninu að því er varðar starfsleyfi sem veitt eru samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Í frumvarpi um breytt fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits, sem ráðherra hefur farið með fyrir ríkisstjórn, er meðal annars kveðið á um afnám auglýsingaskyldu vegna 104 tegunda atvinnustarfsemi svo fremi sem starfsemin falli ekki undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Í því felst að skilyrði um fjögurra vikna auglýsingu og umsagnatíma áður en starfsleyfi er veitt fellur brott. Mun þetta t.a.m. gilda um gististaði, baðstaði, verkstæði, heilsuræktarstöðvar, ýmsa iðnaðar- og landbúnaðarframleiðslu, skólahúsnæði og íþróttahús.

Reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Viðvörun: Djúp lægð með hvassviðri, stormi og éljagangi

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Neituðu að taka niður upplogna níðgrein um meint barnaníð

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • ,,Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni sem varða við lög“

    117 deilingar
    Share 47 Tweet 29
  • Líshættuleg líkamsárás er Palestínumenn og Íslendingar hittust

    70 deilingar
    Share 28 Tweet 18
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?