Arðgreiðsla Síldarvinnslunnar vegna rekstrarársins 2025 er alls 3 milljarðar
Var þetta samþykkt á aðalfundi Síldarvinnslunnar, einnig voru samþykkt stjórnarlaun fyrir árið 2026. Formaður stjórnar verður með 750.000 á mánuði en aðrir stjórnarmenn með kr. 500.000. Varamenn með kr. 250.000 á mánuði.
Á aðalfundinum var jafnframt kosið í stjórn félagsins. Voru kjörin Anna Guðmundsdóttir, Baldur Már Helgason, Erla Ósk Wissler Pétursdóttir, Guðmundur Rafnkell Gíslason og Þorsteinn Már Baldvinsson. Varamenn voru kjörnir Ingi Jóhann Guðmundsson og Katla Þorsteinsdóttir.
Rekstrartekjur ársins 48,6 milljarðar, 20% aukning milli ára
Þorsteinn Már Baldvinsson, formaður stjórnar Síldarvinnslunnar, kynnti skýrslu stjórnar á fundinum sem sýndi að rekstrartekjur Síldarvinnslunnar hafi numið 48,6 milljörðum króna á síðasta ári og er það tæp 20% aukning milli ára. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 14,8 milljarðar og hagnaður ársins 8,2 milljarðar króna.

