• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 22. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Djúp og kröpp lægð og önnur á leiðinni

Djúp og kröpp lægð og önnur á leiðinni

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. mars 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Nú þegar þetta er skrifað eldsnemma á sunnudagsmorgni er djúp og kröpp lægð skammt austur af landinu. Hún veldur norðan hvassviðri eða stormi með snjókomu á austanverðu landinu. Lægðin fer hratt til norðausturs og því skánar veður nokkuð hratt á þessum slóðum þegar kemur fram á daginn, eftir hádegi ætti að vera úrkomulítið og verulega dregið úr vindi. Ferðalangar ættu þó að leita sér upplýsinga um ástand vega áður en lagt er af stað. Vestan megin á landinu er útlit fyrir vestlæga átt í dag með éljum. Frost yfirleitt á bilinu 0 til 5 stig.

Á morgun nálgast næsta lægð okkur úr suðri. Þá gengur í hvassa austanátt með snjókomu, jafnvel sums staðar stormur, einkum til fjalla. Það hvessir fyrst á sunnanverðu landinu, en veðrið færist síðar einnig yfir í aðra landshluta. Síðdegis er gert ráð fyrir að hiti hafi farið vel yfir frostmark nærri suðurströndinni og þá má búast við að úrkoman verði á formi rigningar eða slyddu þar.

Spár gera síðan ráð fyrir að lægð morgundagsins færi sig fyrir austan land á þriðjudag og valdi þá norðanátt, sem verður allhvöss eða jafnvel hvöss. Með fylgir snjókoma eða él, en sunnan heiða ætti að verða úrkomulaust að mestu. Búast má við að kólni með norðanáttinni.
Spá gerð: 22.03.2026 06:44. Gildir til: 23.03.2026 00:00.

 Gul viðvörun vegna veðurs: Suðurland, Austurland að Glettingi, Austfirðir og Suðausturland   Meira

Veðurhorfur á landinu
Norðan 15-23 m/s og snjókoma á austanverðu landinu framan af degi, en mun hægari vestanátt og él vestantil. Dregur síðan úr vindi og úrkomu, vestlæg átt, 5-15 og él í flestum landshlutum síðdegis. Frost víða 0 til 5 stig.
Gengur í austan 15-23 m/s á morgun með snjókomu, fyrst á sunnanverðu landinu, en rigningu eða slyddu við suðurströndina síðdegis og hita yfir frostmarki þar. Dregur úr vindi og úrkomu sunnantil annað kvöld. Spá gerð: 22.03.2026 09:25. Gildir til: 24.03.2026 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Norðan 13-20 m/s og snjókoma eða él, en úrkomulítið sunnantil á landinu. Heldur hægari vindur undir kvöld. Frost 2 til 7 stig.

Á miðvikudag:
Norðvestlæg átt, víða 3-10 m/s, en 10-15 við austurströndina. Allvíða líkur á éljum, einkum við ströndina, en bjartviðri sunnanlands. Frost 3 til 10 stig að deginum.

Á fimmtudag:
Gengur í suðaustanhvassviðri með snjókomu eða slyddu og hlýnar í veðri, en síðan hægari vindur með rigningu við suður- og vesturströndina.

Á föstudag:
Suðvestlæg átt og él, en yfirleitt þurrt austanlands. Hiti kringum frostmark.

Á laugardag:
Útlit fyrir suðaustlæga átt með rigningu eða slyddu og hlýnandi veður.
Spá gerð: 22.03.2026 07:55. Gildir til: 29.03.2026 12:00.

 

Umræða
Share9Tweet6
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Veðurviðvörun á Tenerife, stormur og snjór – vinsælum ferðamannastað lokað

    Veðurviðvörun á Tenerife, stormur og snjór – vinsælum ferðamannastað lokað

    60 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Djúp og kröpp lægð og önnur á leiðinni

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Verð á eldsneyti lækkar

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Ríkisstjórnin skoðar að slaufa krónunni og taka upp aðra mynt

    64 deilingar
    Share 26 Tweet 16
  • Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?