Tveimur erlendum ríkisborgurum, körlum á þrítugs- og fertugsaldri, hefur verið vísað brott frá Íslandi samkvæmt ákvörðun Útlendingastofnunar á grundvelli laga um útlendinga nr. 80/2016. Þeim var jafnframt bönnuð endurkomu til Íslands, öðrum í sjö ár og hinum í sex ár.
Mennirnir voru handteknir vegna þjófnaðarmála á höfuðborgarsvæðinu fyrr í mánuðinum, örfáum dögum eftir komuna til landsins. Þýfið fannst á dvalarstað þeirra, en við yfirheyrslu hjá lögreglu játuðu mennirnir sök. Talið er að tilgangur ferðarinnar til Íslands hafi verið að stunda brotastarfsemi hérlendis.
Umræða


