Hugleiðingar veðurfræðings
Hæð yfir Grænlandi og lægð við Noreg beina köldu lofti yfir landið í dag, fremur hægur vindur víðast hvar en austantil má þó búast við norðvestan strekkingi eða allhvössum vindi. Kalda loftinu fylgja dálítil él norðanlands og einnig við vesturströndina þegar líður á daginn, en í öðrum landshlutum verður þurrt og allvíða bjart. Frost yfirleitt 2 til 10 stig, en herðir á frosti í innsveitum í kvöld.
Í nótt kemur djúp lægð inn á Grænlandshaf, skil frá henni ganga norðaustur yfir landið á morgun og valda illviðri í flestum landshlutum.
Það snýst því í vaxandi suðaustan- og austanátt í nótt, víða 18-28 m/s í fyrramálið og talsverð snjókoma eða slydda, hvassast suðvestanlands, en hægari og úrkomuminna um landið norðaustanvert. Eftir hádegi fer veður ört batnandi á Suður- og Vesturlandi í kjölfar skilanna með sunnan strekkingi og slydduéljum, en norðan- og austantil má búast við austan hvassviðri og snjókomu fram á kvöld. Hlýnar smám saman.
Fyrir hádegi á morgun má því búast við sannkallaðri stórhríð á Suður- og Vesturlandi, gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út og ferðalög ekki ráðleg. Eins og fyrr segir mun veður fara ört batnandi á þessum slóðum eftir hádegi, en norðan- og austanlands er líklegt að veðrið valdi samgöngutruflunum fram á kvöld. Spá gerð: 25.03.2026 06:46. Gildir til: 26.03.2026 00:00.
Appelsínugul viðvörun vegna veðurs: Höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflói og Miðhálendi
Veðurhorfur á landinu
Norðvestan 10-18 m/s austantil, annars mun hægari vindur. Bjart með köflum, en dálítil él norðanlands og einnig við vesturströndina síðdegis. Frost víða 2 til 10 stig. Dregur úr vindi á norðaustanverðu landinu í kvöld, léttir til og herðir á frosti.
Vaxandi suðaustan- og austanátt í nótt, 18-28 m/s í fyrramálið og talsverð snjókoma eða slydda, hvassast suðvestantil, en hægari og úrkomuminna um landið norðaustanvert. Snýst í sunnan 8-15 eftir hádegi með slydduéljum, en austan hvassviðri og snjókoma norðan- og austantil fram á kvöld. Hlýnar í veðri, hiti um eða yfir frostmarki síðdegis.
Spá gerð: 25.03.2026 07:40. Gildir til: 27.03.2026 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Breytileg átt 3-10 m/s og él eða slydduél, en norðaustan 15-23 með snjókomu norðvestanlands. Hiti um eða yfir frostmarki. Norðan og norðvestan 13-20 með éljum eða snjókomu um kvöldið, en stöku él sunnan heiða, kólnar í veðri.
Á laugardag:
Minnkandi norðvestanátt um morguninn og styttir upp, frost 1 til 8 stig. Vaxandi suðaustanátt eftir hádegi, 15-23 og snjókoma eða slydda undir kvöld, en heldur hægari og úrkomuminna um landið norðaustanvert. Hlýnar í veðri.
Á sunnudag:
Snýst í norðlæga eða breytilega átt 8-15 með snjókomu, en dálítil él eða slydduél sunnanlands. Hiti um eða undir frostmarki.
Á mánudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt og él, en þurrt að mestu á austanverðu landinu. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag:
Vestlæg átt og él, en bjart fyrir austan. Frost 0 til 8 stig.
Spá gerð: 25.03.2026 08:12. Gildir til: 01.04.2026 12:00.


