• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 26. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fjármálaáætlun 2027-2031: Agi og festa, stöðvun hallareksturs

Mynd: Sigurjón Sigurjónsson

Fjármálaáætlun 2027-2031: Agi og festa, stöðvun hallareksturs

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. mars 2026
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 sem styrkir stoðir íslensks efnahagslífs með auknum aga og festu í ríkisfjármálum. Áætlunin markar skýr tímamót þar sem hallarekstur ríkissjóðs verður stöðvaður árið 2027 og skuldahlutfall hins opinbera lækkað markvisst á tímabilinu. Ábyrg ríkisfjármál eru lykilforsenda lægri vaxta og stöðugleika fyrir heimili, fyrirtæki, fjárfestingu og aukna verðmætasköpun.

Grunnur lagður fyrir lækkun vaxta

Markmið áætlunarinnar er að skapa stöðugleika í efnahagslífinu til að takast á við breyttar aðstæður. Undanfarin ár hafa einkennst af hægari hagvexti og meiri óvissu en áður. Þessum aðstæðum þarf að sýna viðspyrnu með skýrri forgangsröðun og ábyrgri stefnu í ríkisfjármálum.  Bætt afkoma ríkissjóðs leggur grunn að lægri verðbólgu og þ.a.l. lægra  vaxtastigi, sem hefur bein og jákvæð áhrif á heimili og fyrirtæki.

Hagræðing og forgangsröðun

Áhersla er lögð á að halda aftur af vexti ríkisútgjalda og halda honum vel innan marka stöðugleikareglu, ásamt því að einfalda stjórnsýslu og nýta fjármuni betur. Áfram verður unnið að því að lækka skuldahlutfall hins opinbera og er áætlað að það lækki úr 44% af landsframleiðslu árið 2026 í 41% árið 2031.

Meðal nýrra hagræðingaraðgerða í þessari fjármálaáætlun er 1% fækkun stöðugilda hjá ríkinu þar sem stefnt er að því að spara tæplega 4 ma.kr. árlega, án skerðingar á grunnþjónustu. Tekjur ríkissjóðs verða styrktar með frekari umbótum á skattkerfinu.

Fjárfest í mikilvægum málaflokkum

Skýr áhersla er lögð á öfluga uppbyggingu og markvissa fjárfestingu. Forgangsröðun fjármuna tryggir að áfram verði fjárfest í grunninnviðum, sérstaklega í heilbrigðiskerfi, samgöngum, málefnum barna, menntamálum og öðrum lykilmálaflokkum sem styðja við verðmætasköpun, lífskjör og aukin lífsgæði.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra: „Staða íslenska hagkerfisins er í grunninn sterk og horfur til lengri tíma jákvæðar.  Aðstæður krefjast þess þó að áfram sé haldið af festu og ábyrgð. Þegar ríkissjóður er vel rekinn þá gengur Íslandi vel. Með skýrri stefnu í ríkisfjármálum er lagður grunnur að stöðugra efnahagslífi og bættum lífskjörum til framtíðar.“

  • Fjármálaáætlun vefútgáfa
  • Fjármálaáætlun
  • Kynning ráðherra
  • Lykiltölur
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fólk skilið eftir án tekna mánuðum saman hjá Virk og Tryggingastofnun

    Fólk skilið eftir án tekna mánuðum saman hjá Virk og Tryggingastofnun

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Daði Már Kristófersson fær uppsagnabréf án áminningar

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Lögreglumenn staðfestu tengsl við Hamas hryðjuverkasamtökin

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Nú finnur þú fleira á Mínum síðum

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Kona sökuð um kynferðislega misnotkun, barsmíðar, svelti, heilaþvott og fleira

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?