Snjóflóð féll í Ólafsfirði fyrir skemmstu. Einn lenti í flóðinu og var leitað í fyrstu en hann er nú kominn í leitirnar heill á húfi. Þetta staðfestir Andri Freyr Sveinsson varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra við RÚV sem birti fyrst fréttina.
Flóðið féll utan byggða í Skeggjabrekknadal nálægt golfsvæðinu.
Allar björgunarsveitir á Eyjafjarðasvæðinu voru boðaðar út í hæsta forgangi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð út að beiðni lögreglunnar en hefur verið afturkölluð.
Umræða

