• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 29. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Útboð­ fyrir Sæbrautar­stokk

Útboð­ fyrir Sæbrautar­stokk

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. mars 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Vegagerðin hefur boðið út verkhönnun á undirbúningsframkvæmdum fyrir Sæbrautarstokk. Um er að ræða gerð verkhönnunargagna, meðal annars fyrir rif, aðstöðusköpun og hjáleiðir fyrir Sæbraut.

Frestur til að skila inn tilboðum er til kl. 14:00 þriðjudaginn 14. apríl 2026. Verki skal að fullu lokið 30. nóvember 2026.

Um Sæbrautarstokk:

Fyrirhugað er að Sæbraut verði sett í stokk á um 1 km löngum kafla sem nær frá Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs.

Ný gatnamót við Kleppsmýrarveg/Skeiðarvog verða byggð ofan á norðurhluta stokksins með römpum að og frá Sæbraut til norðurs og suðurs. Í Sæbrautarstokk verða tvær akreinar í hvora átt auk blöndunarreina, að- og fráreina og neyðarvasa. Stoðveggir verða við enda stokksins og við rampana.

Eitt af markmiðunum er að bæta umhverfið í aðliggjandi byggð og tengja betur saman hverfi sem nú eru aðskilin af mikilli umferð.

Hvaða áhrif hefur Sæbrautarstokkur á höfuðborgarsvæðið?

  • Greiðari samgöngur fyrir akandi og aukið umferðaröryggi með frjálsu flæði yfir langan kafla Reykjanesbrautar (Sæbrautar) með afnámi gatnamóta við Súðarvog og mislægum gatnamótum við Kleppsmýrarveg.
  • Greiðari samgöngur fyrir gangandi og hjólandi og aukið umferðaröryggi með tengingum ofan á stokki milli borgarhluta austan og vestan megin við Sæbraut.
  • Greiðar samgöngur fyrir Borgarlínu og Strætó með mislægri þverun við Sæbraut á sérakreinum.
  • Hljóðvist og loftgæði eru bætt á löngum kafla.
  • Bættar tengingar almenningssamgangna sem og fyrir gangandi og hjólandi stuðla að auknu hlutfalli ferða vistvænna samgöngumáta sem er þáttur í að mæta loftlagsmarkmiðum stjórnvalda.
  • Meira pláss til uppbyggingar og borgarþróunar fjölgar jafnframt mögulegum notendum vistvænna samgangna.
  • Ofan á stokknum er gert ráð fyrir nýjum borgargarði með gróðri, göngu- og hjólastígum og góðri aðstöðu til útivistar og samveru.

Sæbrautarstokkur er ein af þeim stofnvegaframkvæmdum sem heyra undir Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

Gláma-Kím teiknaði meðfylgjandi myndir.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fólk skilið eftir án tekna mánuðum saman hjá Virk og Tryggingastofnun

    Fólk skilið eftir án tekna mánuðum saman hjá Virk og Tryggingastofnun

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Snjóflóð féll í Ólafsfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Útboð­ fyrir Sæbrautar­stokk

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Brjálaður maður á almannafæri

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Umsækjendur um starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?