• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 11. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. ágúst 2018
in Óflokkað
A A
0

Í síðustu viku slösuðust tíu vegfarendur í sjö umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 29. júlí  – 4. ágúst.   
Sunnudaginn 29. júlí kl. 8.54 féll bifhjólamaður í Korputorgi við Blikastaðaveg. Hann var fluttur á slysadeild.

Tvö umferðarslys voru tilkynnt miðvikudaginn 1. ágúst. Kl. 19.55 varð árekstur með bifreið, sem var ekið norður Suðurlandsveg, út fyrir veg og síðan áleiðis í U-beygju við Rauðavatn,
þrátt fyrir óbrotna miðlínu, og bifreið, sem var ekið norður veginn. Ökumaður og farþegi í síðarnefndu bifreiðinni fóru á slysadeild í framhaldinu. Og kl. 20.53 féll hjólreiðamaður af hjóli sínu á leið norður Réttarholtsveg við Sogaveg. Hann var fluttur á slysadeild.
Tvö umferðarslys voru tilkynnt fimmtudaginn 2. ágúst. Kl. 4.57 var bifreið ekið suður Hafnarfjarðarveg og á grjót við veginn við Arnarnesbrú. Ökumaðurinn, sem virðist hafa „dottið út” skömmu áður en óhappið varð, var fluttur á slysadeild. Og kl. 8.58 var bifreið ekið suður Vesturlandsveg, framúr bifreiðum gegnt Grundarhverfi á öðru hundraðinu (leyfður hámarkshraði er 70 km/klst), þrátt fyrir óbrotna miðlínu, og aftan á bifreið, sem var ekið frá Vallargrund og áleiðis suður veginn. Báðir ökumennirnir voru fluttir á slysadeild.
Tvö umferðarslys voru tilkynnt laugardaginn 4. ágúst. Kl.1.17 var bifreið ekið vestur Nesjavallaleið, út af henni að norðanverðu miðja vegu og á hitaveiturör. Ökumaðurinn hafði sofnað undir stýri. Hann, ásamt farþega, var fluttur á slysadeild. Og kl. 4.15 var bifreið ekið um Vesturlandsveg og á ljósastaur við gatnamót Skarhólabrautar. Ökumaðurinn, sem hafði sofnað undir stýri, var fluttur á slysadeild.
Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli allra vegfaranda á mikilvægi þess að fara ávallt varlega í umferðinni. Það á ekki síst við um ökumenn – hvort sem um er að ræða bifreiða eða reiðhjóla.

Frá vettvangi við Nesjavallaleið.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Ríkisstjórnin boðar hækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána neytenda

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Ó­lög­mæt eigna­upp­taka í gegnum verð­tryggingu eru 60 milljarðar síðustu þrjú ár

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ,,Stanslaust klisju kjaftæði“

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Laus hundur veittist að barni

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?