,,Reknir eins og hundar ef kvótakerfið er gagnrýnt“
Hegðun skipstjóra og útgerðar Júlíusar Geirmundssonar hefur verið harðlega gagnrýnd eftir að upp komst um hvernig farið var með áhöfn skipsins þar sem lífi áhafnarinnar var stefnt í hættu. Skv. heimildum Fréttatímans er kúgun algeng um borð í skipum með mikinn kvóta, áhöfninni sé t.d. bannað að gagnrýna kvótakerfið og fleira. Heimildarmaður Fréttatímans segir: ,,Við ráðningu eru menn látnir skrifa undir allskonar pappíra þar sem komi fram hvað menn mega segja og hvað ekki, það er t.d. alveg bannað að gagnrýna kvótakerfið og geri menn það eða segi frá brottkasti eru þeir reknir og fá þeir hvergi vinnu. Þetta er ekkert annað en gróf aðför að mannréttindum og tjáningarfrelsi. Ef menn skrifa ekki undir þetta eða brjóta þessa ólöglegu samninga, þá eru þeir bara reknir eins og hundar“ segir heimildarmaðurinn sem segist verða rekinn ef nafn hans er birt.
Úlfar Hauksson, vélstjóri og stjórnmálafræðingur, skrifar m.a. á vef sínum: ,,Arnar Hilmarsson, háseti á Júlíusi Geirmundssyni, er núna kominn á „svarta lista“ SFS/LÍÚ fyrir að lýsa ástandinu um borð og viðra skoðanir sínar á Covid málinu.
Hann er núna stimplaður sem „vandræðagemsi“ af hálfu útgerðarinnar.
Þetta er þekkt aðferð þöggunar og margnotuð gagnvart mönnum sem tjá skoðanir sínar og segja einfaldlega frá hlutum sem í heilbrigðu og eðlilegu samfélagi ætti að vera sjálfsagt.
Mér finnst Arnar helst til ungur til að vera á þessum lista en þetta er góður listi göfugra manna er mér tjáð….“
https://gamli.frettatiminn.is/hver-er-ad-ljuga-ad-okkur-adstaedur-skipverja-voru-vaegast-sagt-skelfilegar/
Umræða