• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 15. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Borgarstjóri fær mánaðarlaun fyrir klukkustundar fund''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. janúar 2020
in Ferðaþjónusta, Innlent
A A
0
Dagur B. Eggertsson

,,Borgarstjóri fær 230 þúsund fyrir einn fund. Margir félagar í Eflingu þurfa að strita í mánuð fyrir þeirri upphæð.

Er það eðlilegt?“ Spyr Michael Bragi, trúnaðarmaður í Eflingu, sem benti á þennan mun á trúnaðarmannafundi Eflingar í kvöld.

95,5% hafa samþykkt verkfallsboðun gegn Reykjavíkurborg

Yfirgnæfandi meirihluti kjósenda í atkvæðagreiðslu Eflingar um verkfallsaðgerðir gegn Reykjavíkurborg  eða 95,5% hefur samþykkt verkfallsboðun. Atkvæðagreiðslan stóð yfir í fimm daga og lauk á hádegi í gær, sunnudaginn 26. janúar.
Metþátttaka var í atkvæðagreiðslunni eða 59,2%. Alls voru 1.894 félagsmenn Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg á kjörskrá að þessu sinni. Af þeim greiddi 1. 121 atkvæði eða 59,2% eins og áður segir. Af greiddum atkvæðum samþykkti 1.071 eða 95,5% verkfallsboðun. Alls voru 34 á móti eða 3,1% og 16 tóku ekki afstöðu eða 1,4%.
Enginn borgarfulltrúi treysti sér að mæta í viðtal um kjaradeilu Eflingar við borgina og Kristján Kristjánsson ræddi þess í stað framkvæmdastjóra Eflingar einan í viðtali á Sprengisandi.

Sólveig Anna Jónsdóttir

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fagnaði því að félagsmenn hafi tekið undir tillögu samninganefndar um boðun verkfallsaðgerða. „Ég hef fundið fyrir gríðarlegum baráttuvilja meðal starfsmanna í fjölmörgum heimsóknum mínum á vinnustaði borgarinnar síðan í haust. Fólk er orðið langþreytt á því að vinna fyrir sultarlaunum við vaxandi álag og erfiðar aðstæður. Metkosningaþátttaka, svo ekki sé talað um yfirgnæfandi vilja til aðgerða, sýnir svo ekki verður um villst að við erum á réttri leið og höfum fjöldann á bakvið okkur. Með þennan vind í seglunum eru okkur allir vegir færir í baráttunni við borgina.“
Með atkvæðagreiðslunni hafa félgsmenn Eflingar samþykkt verkfallsboðun gagnvart Reykjavíkurborg. Formleg verkfallsboðun verður afhent borgaryfirvöldum og ríkissáttasemjara fyrir hádegi á morgun, mánudaginn 27. janúar.
Skipulag verkfallsaðgerða verður með eftirfarandi hætti:

  • Þriðjudagur 4. febrúar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 12:30 og fram til klukkan 23:59.
  • Fimmtudagur 6. febrúar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.
  • Þriðjudagur 11. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 12:30 og fram til klukkan 23:59.
  • Miðvikudagur 12. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.
  • Fimmtudagur 13. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.
  • Mánudagur 17. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og ótímabundið eftir það.

Hörkulaun hjúkrunarfræðinga – Launaseðill opinberaður

https://gamli.frettatiminn.is/horkulaun-hjukrunarfraedinga-launasedill-opinberadur/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    71 deilingar
    Share 28 Tweet 18
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Það er búið að ákveða ofurskatta á bílaumferð í borginni“ segir heimildarmaður í innsta hring

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Eftirlýst kona handtekin

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?