Réttlætið sigraði í dag
Ólafur Hand, fyrrverandi upplýsingafulltrúi Eimskipa, var sýknaður fyrir Landsrétti af meintu ofbeldi gegn barnsmóður sinni. Landsréttur sneri þar með við dómi Héraðsdóms sem féll í málinu frá því í desember 2018 þar sem Ólafur var sakfelldur fyrir ofbeldisbrot. Hann hefur því þurft að glíma við æru missi um árabil vegna seinagangs í dómskerfinu. Ólafur var einnig sýknaður af kröfu stefnanda um miskabætur. Bubbi Morthens vekur athygli á málinu og segir:
Fjölmiðlar birtu óhróður um hann
,,Ólafur William Hand vinur minn var sýknaður í Landsrétti og mannorð hans hreinsað. Fólk hefur stigið fram og hrakyrt hann sem ofbeldismann sem hann er ekki. Fjölmiðlar birtu óhróður um hann og hann misti vinnuna. Í kjölfarið af þessari ákæru hefur fjölskylda hans þurftir að þola miklar raunir og kannski mest dóttir hans sem hann hefur ekki fengið að hitta í mörg ár.
Við sem þekkjum Óla höfum alltaf vitað hvað mann hann hefur að geyma. Réttlætið sigraði í dag❤️🙏“