• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fréttir af Hítará

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. desember 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Fréttir af Hítará

Stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur (SVFR) mælist góðfúslega til þess við veiðimenn í Hítará, að þeir sleppi í sumar öllum fiski sem veiðist í ánni og hliðarám hennar.        (11/07/2018 kl. 22:52)

,,Eins og flestum er kunnugt um féll stór skriða úr Fagraskógarfjalli í Hítardal að morgni 7. júlí 2018. Of snemmt er að segja til um endanleg áhrif hamfaranna á vatnasvæðið til framtíðar. Þó  er ljóst að Hítará mun áfram renna líkt og hún hefur gert í þúsundir ára þótt farvegurinn sé nýr að hluta.
Þó áhrif skriðunnar séu ekki að fullu kunn má ljóst vera að hún kann að hafa áhrif á laxagengd og hrygningu, þó vonir allra standi til þess að þau verði sem allra minnst.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur tekið fyrsta skrefið í því að stuðla að því að lífríki árinnar njóti vafans og öllum veiddum fiski verði sleppt í sumar. Að formi til hefur veiðireglum í Hítará og hliðarám hennar ekki verið breytt af veiðiréttareigendum og því er veiðimönnum heimilt að veiða samkvæmt þeim, þótt góðfúslega sé mælst til þess að öllum fiski sé sleppt.
Í ljósi aðstæðna hefur SVFR ákveðið, að gefa fimm veiðileyfi á næsta veiðiári aðilum sem sleppa fiski í Hítará í sumar. Veiðimenn þurfa að senda skrifstofu félagsins upplýsingar um nafn sitt, veiðistað og stærð fisks ásamt myndbandi af sleppingunni, og verður nafn þeirra þá sett í pott. Nöfn fimm veiðimanna verða svo dregin úr pottinum að loknu veiðisumri. SVFR  mun einnig vinna í því að koma klakkistum fyrir hið fyrsta, þ.e. í samráði og sátt við veiðiréttareigendur og viðeigandi yfirvöld.
Á þessari stundu er veitt í Hítará og veiðiholl sem lauk veiðum í hádeginu 8. júlí landaði 30 löxum, sem verður að teljast eðlileg veiði fyrir 2ja daga holl á þessum tíma. Þeir sem hófu veiðar seinnipart 8. júlí lönduðu 7 löxum þann seinnipart sem verður að teljast gott. Þessa stundina er vatnið í ánni litað, bæði vegna rigninga á svæðinu og þess að áin er að ryðja sér nýjan farveg, en það er von okkar að áin hreinsi sig og nái jafnvægi á næstu dögum.
Lax heldur áfram að ganga í Hítará og er stórstreymi nú 15. júlí, sem að öllu jöfnu skilar stærstu göngu sumarsins inn í ánna. Þeir laxar ganga upp í ánna alla leið að Ármótum, og mögulega inn í hinn nýja árfarveg sem áin hefur fundið sér og þannig upp í Hítardal. Þetta á hins vegar eftir að koma í ljós á næstu vikum. Er það einlæg von okkar og trú að veiðimenn sem koma til veiða í Hítará muni eftir sem áður eiga þar góðar stundir og fái þar góða veiði. Það er enda eðli veiðimanna og veiðikvenna að vera bjartsýn.
SVFR mun áfram vera í sambandi við Hafrannsóknarstofnun og önnur yfirvöld með hagsmuni Hítarár og Grjótá og Tálma að leiðarljósi. Þá mun SVFR einnig funda með veiðifélagi Hítarár um þá stöðu sem upp er kominn með sömu hagsmuni að leiðarljósi. Nú þurfa allir að standa saman.¨Segir á vef SVFR.
https://gamli.frettatiminn.is/2018/07/08/thyrlan-flaug-yfir-svaedid-i-hitardal/
Umræða
Share7Tweet4
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    81 deilingar
    Share 32 Tweet 20
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?