• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

FA kvartar til ESA vegna niðurgreiðslu sumarnámskeiða

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
30. júní 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Félag atvinnurekenda hefur sent Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) formlega kvörtun vegna niðurgreiðslna stjórnvalda á sumarnámskeiðum háskóla, sem haldin eru í beinni samkeppni við námskeið á vegum félagsmanna FA, einkarekinna fræðslufyrirtækja.
FA sendi menntamálaráðherra erindi i síðustu viku vegna 500 milljóna króna framlags mennta- og menningarmálaráðuneytisins til sumarnáms í háskólum landsins, sem komið var á til að bregðast við bágu atvinnuástandi í kjölfar heimsfaraldurs COVID-19 veirunnar. Komið hefur í ljós að drjúgur hluti þessarar fjárveitingar rennur til endur- og símenntunarstofnana háskólanna og að námskeið, sem eru utan verksviðs háskólanna eins og það er skilgreint í lögum, eru niðurgreidd um tugi þúsunda króna. Viðkomandi starfsemi er í beinni samkeppni við námskeið á vegum einkarekinna fræðslufyrirtækja. Háskólarnir, sem njóta ríkisstyrkja fyrir, bjóða námskeið á 3.000 krónur í krafti niðurgreiðslunnar. Það er verð sem keppinautar þeirra geta ekki með nokkru móti keppt við. FA benti í erindi sínu á aðra og sanngjarnari leið til að styrkja sumarnám, jafnt á vegum háskólanna og annarra fræðslufyrirtækja, en hefur ekki fengið nein svör frá ráðuneytinu.
FA færir að því rök í kvörtuninni til ESA að útfærsla niðurgreiðslunnar brjóti gegn 61. grein samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, en hún leggur bann við samkeppnishamlandi ríkisstyrkjum, sem hafa áhrif á viðskipti milli aðildarríkjanna. Áðurnefnd námskeið opinberra og/eða ríkisstyrktra háskóla eru meðal annars í beinni samkeppni við námskeið fyrirtækja í öðrum EES-ríkjum, sem haldin eru á netinu fyrir íslenska viðskiptavini eða í samstarfi við íslensk fræðslufyrirtæki. Sum íslensk fyrirtæki í þessum geira eru hluti af víðtæku alþjóðlegu neti fræðslufyrirtækja. Samkvæmt upplýsingum sem FA aflaði sér hjá ESA hafa þessir ríkisstyrkir ekki verið bornir undir stofnunina af hálfu stjórnvalda líkt og t.d. ferðagjöfin til landsmanna.
ESA hefur staðfest mótttöku kvörtunarinnar.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?