Pilsfaldakapitalismi og vafasamar aðgerðir ríkisins
Viðskiptafræðingurinn og fyrrverandi verðbréfamiðlari Guðmundur Franklín Jónsson kom víða við í pistli sínum í dag. Hann sagði m.a. mörg fyrirtæki ekki þurfa neina aðstoð frá ríkinu, þau hafa gengið það vel í áratugi og greitt eigendum sínum milljarða í arð en hafa núna lokað, eins og t.d. Bláa lónið. ,,Ríkið getur ekki greitt laun fyrirtækja endalaust, það er bara pilsfaldakapitalismi.
Allra síst og ömurlegast er að ríkið sé að borga laun fyrir fyrirtæki sem hafa verið að greiða eigendum milljarða í arð um árabil og nú nýlega. Fyrirtækja sem þurfi enga aðstoð.
Fyrirtækin greiði ríkisaðstoðina til baka og banna á að greiða út eina krónu í arð til eigenda, þangað til hver króna er endurgreidd til skattgreiðenda
Fyrirtækin eiga að greiða ríkisaðstoðina til baka þegar betur fer að ára, það á að banna þeim að greiða út eina krónu í arð þangað til þau hafa greitt hverja einustu krónu til baka til skattgreiðenda. Gefa á fiskveiðar frjálsar hjá smábátum og hætta á að hefta frelsi sjómanna til frjálsra veiða og allur fiskur á að fara á frjálsan, opinberan og gegnsæjan markað. Við eigum ekki að hlusta meira á sægreifana.“
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar eiga ekki alltaf rétt á sér því það er jafnvel verið að veita fyrirtækjum aðstoð sem þurfa ekkert á henni að halda.
Tækifærið sé nú notað til þess að koma í gegn vafasömum málum sem eiga engan rétt á sér. ,,Hví eiga skattborgarar að greiða laun vel stæðra fyrirtækja sem hafa greitt eigendum sínum milljarða í arð á hverju ári og eru vel stæð?“
Þá hefur hann áður bent á aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart heimilunum í landinu en fréttir af fólki sem á ekki fyrir mat, öryrkjum, eldri borgurum og fleiri hópum hafa verið fyrirferðamiklar undanfarið og sér ekki fyrir endann á þeim. Ríkisstjórnin hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að veita ekki þeim aðstoð sem virkilega þurfa á henni að halda. Á meðan er hún að ausa fjármagni í vel stæð fyrirtæki sem hafa ekkert með þetta fjármagn að gera.
Guðmunndur Franklín segir að með einu pennastriki sé hægt að lækka raforkuverð fyrir bændur þannig að þeir geti framleitt sínar vörur án þess að tapa á því og stóraukið íslenska framleiðslu á vörum sem er verið að flytja inn í stórum stíl.
https://www.facebook.com/gundifranklin/videos/547850662523817/
Greiða sjálfum sér milljarða í arð en skattgreiðendur borga tapið
https://gamli.frettatiminn.is/greida-sjalfum-ser-milljarda-i-ard-en-skattgreidendur-borga-tapid/