• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Íslenskt – láttu það ganga

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. september 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Frá bakara til forritara. Frá forritara til hönnunar. Frá hönnun til bænda. Frá bónda til bakara. Frá þér til þín. Þannig gengur þetta – frá þér til þín í í stöðugri hringrás.
Þetta er á meðal þess sem atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið ásamt Samtökum iðnaðarins, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samorku og Bændasamtökum Íslands, vilja minna landsmenn á í kynningarátakinu Íslenskt – láttu það ganga sem fer af stað í dag. Tilgangur átaksins er að hvetja landsmenn, almenning og fyrirtæki til viðskipta við innlenda aðila á fjölbreyttum sviðum, við val á framleiðslu, vörum og þjónustu.
„Með þessu átaki minnum við á ágæti íslenskrar framleiðslu og þjónustu og tökum höndum saman við atvinnulífið við að sporna gegn áhrifum COVID-19,“ segja Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
„Íslenskt efnahagslíf hefur orðið fyrir miklu höggi undanfarið og átakið er einn liður í því að bregðast við – bretta upp ermar og koma því í gang að nýju. Við viljum fá þjóðina í lið með okkur,“ segir Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Íslendingar eru hvattir til að velja íslenska verslun, framleiðslu, hugvit og upplifanir. Með vali á innlendri framleiðslu- og þjónustustarfsemi verður til hringrás sem stuðlar að nýjum störfum, verðmætasköpun og efnahagslegum stöðugleika.
„Með samtakamætti okkar allra getum við staðið vörð um íslenska framleiðslu og þjónustu. Saman látum við þetta ganga og það skilar sér aftur til þín, mín og okkar allra,“ segir Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    181 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?