Þeir sem hyggja á ferðlög næstu daga ættu að fylgjast vel með veðurspám
Hugleiðingar veðurfræðings : Í dag gengur í suðaustankalda með smá rigningu eða slyddu á sunnan- og vestanverðu landinu, en mun hægara og bjartviðri norðaustan til. Á morgun nálgast kröpp og djúp lægð frá Nýfundnalandi. Hvessir þá úr austri og verður hvassast við suðuströndina, jafn vel staðbundinn stormur um kvöldið. Lítlisháttar væta víða um land, en þurrt að kalla fyrir norðan. Áframhaldandi hvassir vindar og úrkomusamt fram á sunnudag, þegar lægir loks og rofar til, en fremur hlýtt miðað við árstíma. Þeir sem hyggja á ferðlög næstu daga ættu að fylgjast vel með veðurspám og færð.
Veðuryfirlit
Yfir N-Írland er víðáttumikil 990 mb lægð, sem mjakast NA, en á Grænlandssundi er minnkandi 1011 mb smálægð. Um 650 km SA af Nýfundnalandi er 1035 mb hæð, sem þokast SA og frá henni teygir sig hæðarhryggur til Íslands. Um 300 km NV af Nýfundnalandi er vaxandi 1014 mb lægð á hreyfingu NA.
Veðurhorfur á landinu
Gengur í suðaustan 8-15 m/s með dálítilli rigning eða slyddu S- og V-lands, hvassast á Snæfelssnesi, en úrkomuminna með kvöldinu. Mun hægara og bjartviðri NA til. Hlýnar í veðir og hiti 1 til 6 stig síðdegis, en nærri frostmarki NA-lands. Vaxandi austanátt á morgun, 13-20 m/s síðdegis, hvassast syðst, en jafn vel staðbundinn stormur þar um kvöldið. Dálítil rigning víða um land, en þurrt að kalla fyrir norðan og hlýnar dálítið.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Gengur í suðaustan 5-10 m/s með dálítilli vætu, 8-13 í kvöld. Austan 10-18 á morgun og þurrt að kalla, hvassast á Kjarlarnesi. Hiti 2 til 6 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Gengur austan 13-20 m/s með rigningu á S-verðu landinu, hvassast syðst og jafn vel stormur þar um kvöldið. Hiti 1 til 6 stig. Hægara og þurrt fyrir norðan og hiti kringum frostmark.
Á föstudag:
Norðaustan 13-20 m/s, hvassast á Vestfjörðum með talsverðri rigningu S- og A-lands, en annars úrkomuminna. Hiti 1 til 7 stig, mildast syðst.
Á laugardag (fyrsti vetrardagur):
Útlit fyrir norðaustanhvassviðri, jafn vel storm með talsverðri rigningu á A-helming landsins, en annars úrkomuminna og milt í veðri.
Á sunnudag:
Stíf norðaustanátt NV-til, en annars mun hægari vindar. Væta í flestum landshlutum og fremur hlýtt í veðri.
Á mánudag:
Líklega hæg norðanátt með skúrum éljum, en úrkomulítið syðra og fremur svalt veður.
Á þriðjudag:
Líkur á vaxandi austanátt með rigningu og hlýnandi veðri.