• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Rafmangsreikningurinn mun hækka vegna undirritunar raforkulaga um Orkupakka

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. júní 2020
in Ferðaþjónusta, Fréttir, Innlent
A A
0

Um hvað snýst orkupakkinn? Hildur Sif Thorarensen verkfræðingur, útskýrir:

https://www.facebook.com/gundifranklin/videos/268542281160882/

Þann 5. september afhenti Guðmundur Franklín Jónsson Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, 7643 undirskriftir sem fulltrúi áskoranasíðunnar synjun.is. Síðan þá hefur áskorunum enn fjölgað og eru þær nú komnar vel yfir átta þúsund enda fleiri orkupakkar væntanlegir og síðan til þess gerð að skora á forseta við fleiri tilefni en þriðja orkupakka ESB.

Forseti tók við undirskriftunum með pompi og prakt á skrifstofu sinni og var glaður í bragði. Það olli því forsvarsmönnum Synjunar, sem og mörgum meðlimum hópsins Orkunnar okkar, miklum vonbrigðum þegar forsetinn skrifaði undir þau tvö lagafrumvörp sem fylgdu þriðja orkupakka ESB, ásamt því að fallast á tillögu um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um þriðja orkupakka ESB.
Orkupakkinn hefur því verið innleiddur á Íslandi þrátt fyrir að tveir þriðju hlutar þjóðarinnar samkvæmt fjölmörgum könnunum hafi verið andsnúnir innleiðingu hans.
Þrátt fyrir áhuga forsetans á stjórnarskrárbreytingum, eins og hann nefnir, er ekki laust við að niðurstaðan sé helst til dapurleg. Nú er Synjun ekki eina vefsíðan sem hefur skorað á forseta eða aðra ráðamenn að leggja þriðja orkupakka ESB í hendur þjóðarinnar en einnig var skorað á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra sem og þingmenn og eru þessar áskoranir samanlagt milli 30 – 40 þúsund.
Það sætir því furðu að hvergi nokkurs staðar á leið þriðja orkupakka ESB í gegnum stjórnkerfið hafi sprottið upp áhugi á að leyfa þjóðinni að taka afstöðu til málsins. Deila má um í hvers umboði þingmenn og nú forseti starfa.

Það sem sætir ekki síður furðu er að fréttastofa Ríkisútvarpsins hafði ekki samband við okkur sem stóðu að þessum undirskriftarsöfnunum tveimur, á Facebook og á Synjun.is, og létu heldur ekki svo lítið að birta fréttatilkynningar sem þeim voru sendar.

Ríkisútvarpið vill hugsanlega ekki styggja sinn kandídat en áður en Guðni Th. varð forseti hafði hann starfað um árabil sem afleysingamaður á fréttastofu Ríkisútvarpsins eins og segir á heimasíðu forsetaembættisins.

Það er erfitt að búa í landi þar sem stjórnvöld telja sig yfir kjósendur sína hafna. Kvarnast hefur úr grasrót Sjálfstæðisflokksins og fylgi ríkisstjórnarflokkanna er búið að vera í frjálsu falli síðan þriðji orkupakki ESB var tekinn til umræðu á Alþingi. Það hefur þó ekki dugað til og þrátt fyrir að skoðanakannanir sýni í sífellu fram á andstöðu þjóðarinnar er augljóst að ráðamenn beina daufa eyranu að staðreyndum og halda áfram sinni Bjarmalandsför.

Hvort einhvern tímann komi nýir tímar þar sem grasrætur flokkanna verða á ný þungamiðjan í hverjum flokki og hlustað verður á rödd þjóðarinnar er erfitt að segja. Við hjá Synjun höldum þó með gleði í hjarta út í veturinn því öll von er aldrei úti á meðan þjóðin stendur saman og berst gegn ofurafli fyrir þeim náttúruauði sem á réttilega að vera í hennar eigin eigu og einskis annars.

Baráttan heldur áfram, víglínurnar eru skýrar. EES-samningurinn virðist nú vera orðinn að einhverskonar tæki í innlimunarferli Íslands inn í Evrópusambandið og er það óásættanlegt því fylgja ber ávallt vilja þjóðarinnar í öllum mikilvægum málum. Þó svo að við höfum tapað þessari orrustu um auðlindirnar þá erum við ekki í vafa um hver vinnur stríðið að lokum, það er þjóðin, þótt síðar verði.

Virðingarfyllst, Guðmundur Franklín Jónsson, viðskipta- og hagfræðingur og Hildur Sif Thorarensen, verkfræðingur

(Birt 9.september 2019 í Fréttatímanum)

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    82 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?