Tugir milljarðar teknir úr ofanflóðasjóði og framkvæmdasjóði aldraðra
Halldór Halldórsson, stjórnarmaður í ofanflóðasjóði og fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir það algjörlega ófyrirgefanlegt að þeir peningar sem hafi runnið í sjóðinn skuli ekki hafa verið nýttir í ofanflóðavarnir. Hann sagði að 8 til 12 staðir bíði eftir þessum peningum til þess að byggja upp snjóflóðavarnir og við gætum aldrei fyrirgefið okkur ef það féllu snjóflóð á þá staði sem væru óvarðir.“ Áætlunin frá 1995 gerði ráð fyrir að framkvæmdum hefði átt að vera lokið fyrir 2010 en miðað við fjárheimildir síðustu ára yrði þetta ekki klárað fyrr en 2060. „Og það er bara hneyksli.“
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði þetta ömurlega stöðu að búið væri að ráðstafa þessu fé í aðra hluti, þrátt fyrir að hafa verið merktir þessu verkefni. Sama ætti við um framkvæmdasjóð fyrir aldraða, þar væru tugir milljarðar sem hefðu bara verið teknir líka úr sjóðnum og notaðir í eitthvað allt annað. „Kannski verður að setja lög sem banna ríkisstjórn að taka peninga sem eru merktir annars staðar. Þetta er ófyrirgefanlegt því þarna eru mannslíf í húfi.“
Lög um ráðherraábyrgð og Landsdóm verða endurskoðuð
https://gamli.frettatiminn.is/2020/01/19/log-um-radherraabyrgd-og-landsdom-verda-endurskodud/