• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tillaga um breyttan opnunartíma leikskólanna, tekin til endanlegrar meðferðar að loknu jafnréttismati

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. janúar 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Að jafnréttismati loknu muni borgarráð taka tillögu um breyttan opnunartíma leikskólanna til endanlegrar meðferðar og afgreiðslu

Í vinnu við jafnréttismat verður lögð áhersla á að fá fram skoðanir foreldra, sérstaklega þeirra sem eru með dvalarsamninga eftir kl. 16.30, og greina aðstæður þeirra. Þá verður leitast við að greina þann hóp foreldra sem almennt á erfitt með að mæta breyttum opnunartíma, hversu stór hann sé og hvernig samansettur. Tillagan er sett fram í samráði við stýrihóp um umbætur og skipulag leikskólastarfs.
Jafnframt felur samþykkt borgarráðs í sér mat á því hvort grípa megi til mótvægisaðgerða vegna breytinga á opnunartíma leikskóla til að vinna að auknu jafnrétti.
Að jafnréttismati loknu muni borgarráð taka tillögu um breyttan opnunartíma leikskólanna til endanlegrar meðferðar og afgreiðslu.
Meirihluti skóla- og frístundaráðs samþykkti 13. janúar að breyta opnunartíma leikskóla borgarinnar frá og með 1. apríl næstkomandi þannig að almennur opnunartími yrði frá 07.30-16.30. Með því styttist opnunartíminn um hálfa klukkustund en leikskólarnir hafa verið opnir til kl. 17.00.
Fyrirhuguð breyting á opnunartíma byggði á tillögu stýrihóps um umbætur og skipulag leikskólastarfs en í honum sitja m.a. fulltrúar leikskólastjóra og leikskólakennara. Tilefni tillögunnar er skortur á leikskólakennurum um land allt í kjölfar lengingar kennaranáms í fimm ár á sínum tíma. Markmið tillögunnar er að minnka álag á börn og starfsfólk leikskóla og standa þannig vörð um gæði leikskólastarfs sem er á heimsmælikvarða. Í skýrslu stýrihópsins kom m.a. fram að 92% leikskólabarna voru sótt fyrir kl. 16.30. 937 börn, eða 18% af heildarfjölda leikskólabarna eru með dvalarsamning sem lýkur eftir kl. 16.30 Um helmingur þeirra er sóttur fyrir kl. 16.30.
Í þeirri vinnu sem fram undan er verður óskað eftir umsögnum hagsmunasamtaka foreldra, s.s. Félags foreldra leikskólabarna í Reykjavík, Heimilis og skóla og hagsmunasamtaka leikskólakennara og stjórnenda.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Strandveiðar hefjist 15. mars til fyrsta október

    Ný reglugerð um strandveiðar hefur tekið gildi

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Kona handtekin fyrir líkamsárás

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Líkamsárásir, fíkniefni, eignaspjöll, hótanir og vopnalagabrot

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • 30.000 fermetra Tækniskóli byggður í einum áfanga

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    62 deilingar
    Share 25 Tweet 16
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?