• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

WHO: Skýrsla um stöðu hjúkrunar um víða veröld

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. apríl 2020
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO birti í dag viðamikla skýrslu um stöðu hjúkrunar á heimsvísu. Útgáfa skýrslunnar ber upp á alþjóðaheilbrigðisdaginn, 7. apríl, sem stofnunin tileinkar hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum. Samkvæmt ákvörðun WHO er raunar allt þetta ár helgað þessum mikilvægu heilbrigðisstéttum. Markmið Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar er að vekja athygli á störfum hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra og stuðla að því að störf þeirra séu metin að verðleikum.
„Hjúkrunarfræðingar eru hryggjarstykkið í heilbrigðiskerfum allra þjóða. Í dag stendur fjöldi hjúkrunarfræðinga í fremstu víglínu vegna baráttunnar við Covid-19. Þessi skýrsla er sterk áminning til okkar um hve hjúkrunarfræðingar gegna mikilvægu hlutverki og ætti að verða okkur vakning til að tryggja að hjúkrunarfræðingar fái þann stuðning sem þeim er nauðsynlegur í þágu heilbrigðis í heiminum“ er haft eftir Dr Tedros Adhanom Ghebreyesus forstjóra Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í fréttatilkynningu í tilefni af útgáfu skýrslunnar í dag.
Viðamikil gagnasöfnun liggur að baki skýrslu WHO; State of the world’s nursing 2020: investing in education, jobs and leadership, sem byggir á upplýsingum um 190 þjóðlanda um allan heim. Eftirfarandi eru nokkur atriði sem lesa má út úr skýrslunni sem telur 114 blaðsíður með fjölda af töflum og myndum sem lýsta stöðunni. Eins má benda á einblöðunga sem WHO hefur gefið út með yfirliti sem dregur fram ýmsar staðreyndir um stöðu hjúkrunarfræðinga í hverju landi fyrir sig.

  • Mikill skortur er á hjúkrunarfræðingum á heimsvísu en staðan er mjög ólík milli þjóða og enn fremur milli heimshluta.
  • Alls starfa tæplega 28 milljónir við hjúkrun á heimsvísu og af þeim eru 19,3 milljónir með hjúkrunarfræðimenntun.
  • Hjúkrunarfræðingar eru hlutfallslega langfjölmennasta heilbrigðisstéttin og eru hjúkrunarfræðingar um 59% af öllum þeim sem starfa við heilbrigðisþjónustu.
  • Um 80% hjúkrunarfræðinga í heiminum starfa í löndum þar sem um helmingur jarðarbúa býr.
  • Talið er að á heimsvísu vanti um 5,9 milljónir hjúkrunarfræðinga til starfa.
  • Skortur á hjúkrunarfræðingum er yfirgnæfandi meðal lágtekjuþjóða. Þegar horft er til þess að hjá þessum þjóðum vantar um 5,3 milljónir hjúkrunarfræðinga til starfa, sem er um 89% af þeim 5,9 milljónum sem skortir á heimsvísu.
  • Á heimsvísu er meðalaldur starfandi hjúkrunarfræðinga tiltölulega lágur. Aldurssamsetningin er hins vegar breytileg milli þjóða og heimshluta og mun óhagsstæðari í Evrópu og Ameríku en í öðrum álfum.
  • Ef takast ætti að uppfylla þörf fyrir hjúkrunarfræðinga á heimsvísu árið 2030 þyrfti að fjölga útskrifuðum hjúkrunarfræðingum um 8% að meðaltali ár hvert, jafnframt því að tryggja betur ráðningar í stöður og sjá til þess að hjúkrunarfræðingar leiti ekki í önnur störf.
  • Einn afhverjum átta hjúkrunarfræðingum starfar í öðru landi en fæðingarlandi sínu eða því landi sem viðkomandi sótti sér menntun í faginu.
  • Kynjahlutföll innan starfsstéttar hjúkrunarfræðinga eru afar ójöfn. Um 90% hjúkrunarfræðinga eru konur. Aftur á móti er bent á í skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar að mjög fáar stjórnunarstöður í heilbrigðisþjónustu séu setnar af hjúkrunarfræðingum eða konum yfirleitt.

State of the world’s nursing 2020: investing in education, jobs and leadership
Yfirlit um stöðuna hjá einstökum þjóðum
Yfirlit um stöðuna á Íslandi

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?